Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1857
1857
1857

Við sauðfjárrækt blasir hinn versti vandi

Hljóðbrot0:00

Lag Á Kaupmanninn, rétt við búðarborðið

VVið sauðfjárrækt blasir hinn versti vandisem veldur því uppistandiað farangur þvoist úr heitu hlandief hann er af Suðurlandi.

Glúmur Gylfason · 1857

Heimildir og samhengi

Amtmennirnir, Páll Melsted (1851) og Pétur Havsteen (1850,1853,1870), skyldu sjá um varnir gegn fjárkláðanum síðari, sem upp kom 1856 í Hraungerði í Flóa, og gerðu Norðlendingum að þvo aðkomið kaupafólk, föt þess og farangur úr greindum legi, heitum og salti blönduðum.
Þar til um 1750 var keyta (hland) sú eina sápa sem þekktist og mest notuð langt fram eftir 19. öld segir Árni Óla í Grúsk V og kallar tabú enda fékk Nóbelsskáldið, HKL, bágt fyrir að lýsa viðbrögðum útlendinga við þeim daun sem fylgdi landanum.

Hólmfríður Hjaltason, skrásett af Elínborgu Lárusdóttur, Tvennir tímar, bls. 44: ,,Keytan þótti (~1880) betri væri hún orðin nokkuð gömul. Öll föt ...voru þvegin úr keytu. Keytan var hituð og soðin og þótti ómissandi því að sápa var þá lítið eða ekkert notuð. Ekki var fólk að þvo sér daglega. ...Á sunnudögum munu þó flestir hafa þvegið sér”.
Keyta: þvag sem hefur staðið.
Árni Óla nefnir keytuna tabú enda var Halli Hallssyni, fv. fréttamanni RÚV, nokkuð niðri fyrir á Útvarpi Sögu í febrúar 2020, er hann sagði Dani hafa svipt Íslendinga sjálfsvirðingunni án þess þó að nefna keytu. Hallur er sagnfræðingur.

Eftir böðunarherferð danskra dýralækna og Jóns Sigurðssonar 1859 ,,var kláðinn úr sögunni sem alvarleg ógn”. (Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir: Heimtur).
Þeir Jón Sigurðsson munu hafa baðað úr karbólsýru.
Í Landanum á RÚV 7/10 2018 kom fram að kúahland hafi svipaða eiginleika og salmíak og var notað áður fyrr til að lita klæði rauð.

Þorvaldur Thoroddsen, minningabók bls. 47: ,,Kláðamálið var þá ... mikið æsinga- og hatursmál; af því leiddi endalaus fundahöld, rifrildi og hávaða, samdrykkjur, útreiðar og fyllerí, stundum ryskingar því þá stóð brennívinsöldin einna hæst”.
Sjá og Guðmundur Hagalín: ævisaga Sæmundar Sæmundssonar, Virkir dagar I, bls. 49; Eldur á Möðruvöllum, bls. 513.

Á bls. 191 í sögu langafa síns, Sigurðar Guðbrandssonar á Skammbeinsstöðum, Dómsdagur, ritar Guðmundur Daníelsson: ,,sums staðar var allt fé skorið niður, sums staðar aðeins það fé sem veiktist og enn annars staðar beitt baðlyfjalækningum, sem reyndar tókust svo vel, að líklega hefði öngva kind þurft að skera kláðans vegna, ef lækningaaðferðin hefði hlotið almennt fylgi meða landsfeðranna".

Myndir

Einnig frá árinu 1857

  • Berorður er Borgfirðingur
  • Á Mosfellsheiði hríðin ær
  • Þjátíu ár mun veðrið vara
  • Fæðist núna fleira' en deyr
← 1856Vala þekkti biskupana báða1857 →Berorður er Borgfirðingur