Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1596
1596
1596

Fær ei biskup öxlum yppt

Hljóðbrot0:00

Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

FFær ei biskup öxlum ypptþá orða heyrist gjálfur:séra Jón sig Gunnu giftog gert það hafi sjálfur.

Glúmur Gylfason · 1596

Heimildir og samhengi

Séra Jón Loftsson í Vatnsfirði giftir sig sjálfur 1593, sviptur embætti 1595, afhenti Vatnsfjörð 12. júlí 1596, sjá enn fremur 1636.

Árb. Espólíns: ,,Þá var Jón prestur Loptsson í Vatnsfirði tekinn að ringlast svo mjög, að hann framdi alla prestþjónustu sjálfur þá er hann kvæntist í þriðja sinn, og meðdeildi sjálfum sér blessan, fyrir því tók Oddur biskup af honum staðinn". (Sjá 1636)

Séra Jón Loftsson hafði verið í tölu heldri presta, prófastur þar vestra og settur rektor í Skálholti veturinn 1555 til 1556. Hér má því telja að um elliglöp eða Alzheimersjúkdóm hafi verið að ræða.
(Ísl. æviskrár).

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1596

  • Margir fundu engin orð
← 1596Margir fundu engin orð1597 →Guðbrandur biskup tók sér tak