Guðbrandur biskup tók sér tak
Lag Fór ég loks að finna kóng - Bj.Þ. 836
Guðbrandur biskup tók sér takog tímann náði fangaer Arngríms lærða almanakút á þrykk lét ganga.
Heimildir og samhengi
Prentað á Hólum Calendarium Arngríms lærða Jónssonar sem er fyrsta tímatalsbók hér á landi. (1606).
Heimild: Þorgerður Sigurgeirsdóttir í Almanaki Þjóðvinafélagsins 1969:
,,Elsta íslenska almanakið sem vitað er um með vissu mun vera almanak Arngríms Jónssonar sem prentað var á Hólum 1597. Er eintak af því almanaki varðveitt í Landsbókasafninu".
Séra Ólafur Guðmundsson, prestur í Sauðanesi á Langanesi frá 1567 til æviloka (d. um 1609) orti rímvísur í Calendaríið. Þar á meðal:
Ap., jún., sept., nó. þrjáigir - [þrjátiger]
einn til hinir kjósa sjer.
Febrú tvenna fjórtán ber,
frekar einn þá hlaupár er.
Heimildir: Friðrik G. Olgeirsson, Langnesingasaga 1. bindi, bls. 71; Bragi óðfræðivefur.
Hér skyldi haft í huga að fram að siðbreytingu höfðu stjarnafróðir í páfagarði reiknað út páska og alla kirkjunnar helgidaga hvers árs.
Mótmælendur vildu ekki þiggja þeirra þjónustu þótt boðist hefði svo sem sjá má af því að þegar gregorska tímatalið tók gildi í kaþólskum löndum1582, sem stytti það ár um 10 daga, sjá þar, þá tóku lönd mótmælenda, a.m.k. Danmörk, ekki þá breytingu upp fyrr en árið 1700, sjá þar.
Á eftrfarandi slóð er rakið það sem vitað er um sögu klukkunnar og úrsins:
Vefurvidenskab.dk (opnast í nýjum flipa)
Enn fremur um tímatal, sjá 1582og 1700.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)