Árið 1596

t.d.

2 vísur frá árinu 1596
  1. 1596

    Margir fundu engin orð

    öðrum lá við klígju
    þá Axlar-Björn níu meðgekk morð
    en minnti að þau væru tíu.

    Raðmorðinginn Axlar-Björn tekinn af lífi, Axlar-Björn, raðmorðingj frá Öxl í Breiðuvík á Snæfellsnesi, dæmdur til að hálshöggvast. Samtímaheimildin Skarðsárannáll telur fórnarlömb Björs níu, en í þjóðsögum eru þau orðin…

  2. 1596Lag: Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

    Fær ei biskup öxlum yppt

    þá orða heyrist gjálfur:
    séra Jón sig Gunnu gift
    og gert það hafi sjálfur.

    Séra Jón Loftsson í Vatnsfirði giftir sig sjálfur 1593, sviptur embætti 1595, afhenti Vatnsfjörð 12. júlí 1596, sjá enn fremur 1636. Árb. Espólíns: ,,Þá var Jón prestur Loptsson í Vatnsfirði tekinn að ringlast svo mjög,…

    Hlusta
    Vatnsfjarðarkirkja