Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1900
1900
1900

Í aldarbyrjun að lágu vér lutum

Hljóðbrot0:00

Lag Undir bláhimni

EFTIRMÆLI 19. aldar

ÍÍ aldarbyrjun að lágu vér lutumSkúla liggja öll verkfæri hljóðmeðan sofandi að feigðarós flutumreyndist fólgin í öskunni glóð:vestu´r á Hrafnseyri forseti fæddistsem að fornbréfa kannaði sjóðlistaskáldið sem hitt kynið hræddistsnertir hjartað í íslenskri þjóð.

Aldar 19du nýlendugróðibændum nyrðra er fellur í skautfeitur sauður varð gullið sem glóðináms- er greiddi best sonanna braut.Jafnt þótt prestar og biskupar blessivex þó Brandesar söfnuður stór.Urðu valdhafar valtir í sessibreiði vegurinn þeim gerðist mjór.

Glúmur Gylfason · 1900

Heimildir og samhengi

Sverrir Jakobsson taldi í fyrirlestri Miðaldastofu HÍ 24.11. 2016, að aldamótin 1800 hafi verið lágpunktur Íslandssögunnar.
Alþingi slitið á Þingvöllum 1798 og biskupsstólar og skólar lagðir af á Hólum og Skálholti um aldamótin 1800.
Þá tóku við Napóleonsstyrjaldirnar sem leiddu til gjaldþrots Danmerkur og siglingaleysis til Íslands, en Englendingar rændu skipum Dana öðrum en þeim sem þeir sökktu.
Hér voru á sama tíma Innréttingar Skúla fógeta í Reykjvík hættar störfum og fyrrum starfsmenn þeirra í reiðuleysi og örbirgð.

Jón Sigurðsson (1811-1879) mun eiga hugmyndina að því að safna saman íslenskum fornbréfum og hann sá um útgáfu á 1. bindi Íslensks fornbréfasafns (Diplomatarium Islandicum, skammstafað D.I. í tilvitnunum), sem Arnór Sigurjónsson segir um í Ásverjasögu, bls. 8: ,,...er meðal skemmtilegustu bóka íslenskra þegar menn eru orðnir læsir á hana".
Fullur titill ritsins er: „Íslenzkt fornbréfasafn, sem hefir inni að halda bréf og gjörninga, dóma og máldaga og aðrar skrár, er snerta Ísland eða íslenzka menn“. 16 bindi komin út hjá Bókmenntafélaginu, það fyrsta 1876.
Vefurjonsigurdsson.is (opnast í nýjum flipa)

Jón Sigurðsson vann frá 1847 ásamt Oddgeiri Stephensen að Lovsamling for Island, en Friðrik 5. hafði 1751 fyrirskipað að út skyldu gefin öll lög og tilskipanir viðkomandi Íslandi, en kom þó ekki til prentunar fyrr en með þeim Jóni. (Tilv. Anna Agnarsdóttir).
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)

Jónas Hallgrímsson kvæntist aldrei og eignaðist engan afkomanda. Konur sem hann girntist voru öðrum gefnar.
Begga gamla í Fjallkirkjunni Gunnars Gunnarssonar, I, 52: ,,Skáld verða menn ekki nema þeir séu það ...og þakkaðu þínum sæla. Þetta eru öðru jöfnu ólánsgrey og sjálfs sín vesalingar, stúlkurnar vilja ekki við þeim líta, þá leggjast þeir í óreglu, drekka frá sér ráð og rænu, deyja ungir og láta eftir sig stuðlaða kveinstafi og annað ekki".

Kirkja og kristni áttu á brattann að sækja eftir miðja 19. öld. Með dönsku stjórnarskránni 1849 var þar komið á trúfrelsi og afnumin skyldusókn í messur. Guðfræði var þá ekki lengur eina bókvitið sem í askinn varð látið og raunsæisstefna aldarinnar var í andstöðu við bókstafstrú. Þar var einkum við heimspekingana Friedrich Nietzsche og Georg Brandes að eiga, sem höfðu m.a. áhrif á íslensk skáld, svo sem Einar Kvaran, Hannes Hafstein, Þorgils gjallanda og Þorstein Erlingsson.

Með febrúarbyltingunni í Frakklandi 1848 féll stjórn Loðvíks Filippusar þar. Í kjölfarið afsalaði Friðrik VII. sér einveldi í Danmörk sama ár og 9 menn sömdu nýja stjórnarskrá sem tók gildi 5. júní 1849. Fjölnismaðurinn Brynjólfur Pétursson var einn níumenninganna. Vegna úrslita Þjóðfundarins í Reykjavík1851var einveldi konungs, sem verið hafði frá 1662 áfram í gildi hér uns stjórnin felldi það einhliða úr gildi 1871, með Stöðulögunum, sem komu til framkvæmda 1873og olli slíku uppnámi í Reykjavík að tilviljun réði að ekki urðu dauðsföll, sjá þar.

Myndir

Einnig frá árinu 1900

  • Fyrir Björg og bónda í Vigur
  • Fyrir veðurs ógnum urðum
  • Hirði gjörðist sjálfrátt svar:
← 1900Hirði gjörðist sjálfrátt svar:1901 →Mörgu gátu komið í kring