Árið 1900

t.d.

4 vísur frá árinu 1900
  1. 1900Lag: Reiðinn spennist - Bj.Þ. 914

    Fyrir Björg og bónda í Vigur

    byr á móti
    sýslumaður marði sigur
    málar Tóti.

    Björg Þorláksdóttur (1874-1934), þá Blöndal, síðast dr. Björg Þorláksson, var neitað um inngöngu í Lærða skólann vegna kynferðis. Sigurður Stefánsson (1854-1924) prestur og alþm. í Vigur (1902) féll í alþingiskosningum…

    Hlusta
    Kona lærir á bókVigurBjörg Þorláksdóttir, síðar dr. B. Þorláksson+4
  2. 1900

    Fyrir veðurs ógnum urðum

    eigna spurðum tjón
    kirkja' á Upsum, og á Urðum
    urðu þar að spón.

    Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 20. sept: ,,Ofsaveður olli slysum og tjóni á skipum og húsum. Kirkjurnar á Urðum og Upsum í Svarfaðardal fuku og brotnuðu í spón". Kallað Kirkjurokið í Wikipediu, einnig aldamótaveðrið…

    Hlusta
    UrðakirkjaUpsakapellaÓveður
  3. 1900Lag: Þar sem enginn þekkir mann - Bj.Þ. 877

    Hirði gjörðist sjálfrátt svar:

    samskot kæmu að notum
    ,,nú borgi auðvelt ekkjurnar
    afgjöldin af kotum".

    Sr. Sigurjón Einarsson, Undir Hamrastáli, 138: ,,Í septemberveðrinu mikla (20. sept.) árið 1900 fórust 15 menn úr Selárdal, flestir húsbændur hreppsins utan prestur. Eftir stóðu konur og börn. Þetta skelfilega sjóslys…

    Hlusta
    Selárdalskirkja(Góði) hirðirinn - il pastore+1
  4. 1900Lag: Undir bláhimni

    Í aldarbyrjun að lágu vér lutum

    Skúla liggja öll verkfæri hljóð
    meðan sofandi að feigðarós flutum
    reyndist fólgin í öskunni glóð:
    vestu´r á Hrafnseyri forseti fæddist
    sem að fornbréfa kannaði sjóð
    listaskáldið sem hitt kynið hræddist
    snertir hjartað í íslenskri þjóð.
    1 erindi til viðbótar

    Sverrir Jakobsson taldi í fyrirlestri Miðaldastofu HÍ 24.11. 2016, að aldamótin 1800 hafi verið lágpunktur Íslandssögunnar. Alþingi slitið á Þingvöllum 1798 og biskupsstólar og skólar lagðir af á Hólum og Skálholti um…

    Hlusta
    +3