Mörgu gátu komið í kring
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Mörgu gátu komið í kringkaupmenn Seyðisfjarðarþótt Hermann, meintu' h'ann Hollending,á hausinn setti Garðar.Bjarki og Austri, blöðin slyng,brugðu á deilur harðar.Múla sendu þeir á þingen Þorstein til Arnarfjarðar.
Heimildir og samhengi
,,Hvalveiðar Norðmanna munu hafa haft meiri áhrif í íslenskum atvinnumálum en oft hefur verið látið í veðri vaka og heimildir eru fyrir því að í upphafi vélbátaútgerðar á Austfjörðum leituðu útvegsmenn gjarnan til hvalveiðistöðvanna með ýmiss konar viðgerðir".
Ritsafn Sagnfræðistofnunar 21, 1987, Jón Þ. Þór, bls. 36.
Snorri G. Bergsson, Roðinn í austri, bls. 13, segir stofnanda Alþýðublaðsins gamla - um áramót 1905 / 6 - hafa kynnst jafnaðarstefnunni meðal norrænna hvalveiðimanna.
Um 1870 fann Otto Wathne (1843-1898) síld á Seyðisfirði og brátt mátti sjá þar íshús, sparisjóð, verkalýðsfélag, tvö fréttablöð, rafveitu, og tvö gufuskip í förum milli landa. (Síld, sjá 1880 og 1903).
Var þá Seyðisfjörður kallaður Klondike Íslands.
Þegar Seyðisfjörður fékk kaupstaðarréttindi 1895 voru íbúar 580.
Austri 31. ágúst 1891: ,,Síldveiðin er aðalástæðan til framfaranna. Eftir 1880 jók síldveiðin mjög almenna velmegun, svo hér var nálega tekið gull upp úr Seyðisfirði. ...árið 1880 veiddust á Seyðisfirði einum, frá ágústmánuði til nóvember, síld fyrir eina miljón króna".
,,Kaupmenn": Um einn þeirra, Hermann, frkvstj. þess skammlífa erlenda útgerðarfélags, Garðar, er þjóðernið ekki vitað, hvað þá meira.
Þegar Garðar varð gjaldþrota keypti Pétur J. Thorsteinsson (1859-1929) prentsmiðju til Bíldudals og fékk Þorstein Erlingsson (1858-1914), ritstjóra Bjarka á Seyðisfirði, og sem verið hafði í stjórn Garðars, til að ritstýra blaði á Bíldudal, en stóð aðeins vetrarlangt vegna ólíkra skoðana. Þorsteinn hafði boðað sósíalisma í Bjarka einna fyrstur manna á Íslandi og fylgdi Valtýskunni að málum. Tók þá Þorsteinn Gíslason (1867-1938) einn við Bjarka 1901, og vönduðust þó ekki kveðjur þeirra Austra - sem Skapti Jósepsson (1839-1905) stýrði - frá því sem áður var - enda studdi Austri Heimastjórnarflokkinn. M.a. var deilt um hvalveiðar – Bjarki með, en Austri á móti. Til Austra hafði stofnað Páll Vigfússon á Hallormsstað 1884. Páll var tengdafaðir Bendikts Magnússonar Blöndal skógarvarðar þar, föður Sigurðar Blöndal skógræktarstjóra. Sr. Magnús Blöndal var bróðir Bjarna frá Vogi.
Í Gesti I, 158, safnriti Gils Guðmundssonar, sést að þeir ritstjórarnir, Skafti og Þorsteinn, nutu samvista í bróðerni þegar lítið bar á að sögn Jóns alþm. Jónsonar frá Sleðbrjót.
Próf. Magnús Jónsson, Saga 19. aldar, 206: ,,...eru varla til öllu harðari hnútur en þá flugu á milli í smástílsgreinum".
Í Einars sögu Guðfinnssonar, bls. 336, segir að Hannibal Valdimarsson í Alþýðuflokksblaðinu Skutli, og Arngrímur Fr. Bjarnason, Vesturlandi, hafi á 4. áratugnum svo lítt vandað hvor öðrum kveðjurnar í þeim ísfirsku blöðum, að ,,til að finna álíka skammir þarf að leita aftur til Seyðisfjarðarblaðanna þegar þeir voru þar ritstjórar, Þorsteinn Gíslason, Skafti Jósefsson og Þorsteinn Erlingsson".
Svona orðbragð hafði þá viðgengist á prenti frá aldamótum (sjá 1910) og segja blaðamenn nú að ekki fengist birt í neinu blaði á 21. öld.
Jón (1855-1912), kenndur við Múla, Jónsson var þm. N-Þings 1886-1892 og Seyðisfjarðar 1904-1908. Hann var faðir glæsimennisins Árna (1891-1947) alþm., föður þeirra Jónasar (1923-1998) alþm. og Jóns Múla þular (1921-2002).
Þeir feðgar fengu sótt glæsimennskuna til afans, - eða hvaða maður er þetta, sem á myndinni sést við hliðina á Jóni frá Múla?
Heimildir: Saga Íslands X, 177; Vilhjálmur Þ. Gíslason: Blöð og blaðamenn.
Vefurlemurinn.is (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Um Garðar, sjá Síldarsögu Íslands eftir Matthías Þórðarson.
Einar Laxness, Íslands saga I, 44, 52.
Seyðisfjarðarmynd: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Bíldudalur:VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)