Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1594
1594
1594

Að Guðbrandur mátti elta Ara

Hljóðbrot0:00

Lag Sólskríkjan mín situr þarna á sama steini

AAð Guðbrandur mátti elta Arayður miðlumþví Stína krafðist sjálf að svarasínum biðlum.

Brennisteinsfýluna brátt tekurrofaer biskup á Hólum má Kristínulofaað fái hjá Ara í Ögri aðsofaef alsáttur gerist við Þorbjörgu íKlofa.

Glúmur Gylfason · 1594

Heimildir og samhengi

Guðbrandur biskup Þorláksson á Hólum tók ekki líklega kvonbænum Ara í Ögri, Magnússonar prúða Jónssonar frá Svalbarði. Mátti þó senda eftirreiðarmenn allt til Héraðsvatna og snúa flokk hans við eftir að Kristín, dóttir hans, hafði skorist í leikinn.

Hér er sama stefið og þegar Þorvaldur b. á Ásgeirsá í Víðidal setti Ísleifi Gissurarsyni hins hvíta, - síðar fyrsti biskup Íslands - það skilyrði að flytti þangað norður ef fá skyldi Döllu, sem leiddi til eftirreiðar. Mannamunur þó: Ef bisk. Jón Ögmundsson heyrði góðs manns getið þá kom honum Ísleifur í hug. Aldrei var slíkt sagt um Ara í Ögri, a.m.k. ekki af Böskum. (1615).

Svalbarðsættin Ara hafði staðið í stórdeilum við Guðbrand, sjá t.d.1581 um verslun, og um fjármál allt til 1620og lotið í átökum við Ásverja um brennisteinsrétt í Námaskarði, en biskup var tengdasonur sm. Árna Gíslasonar, þess sem slóst við föður Ara 1569, sjá þar. Þá ,,flúði” Magnús prúði, faðir Ara, til Vestfjarða upp úr1563 þegar hann missti Norðursýslu er kóngur fékk hana Vigfúsi Þorsteinssyni sem greiðslu fyrir brennisteinsrétt Reykjahlíðar.

Tengdamóðir Ara í Ögri verður Halldóra Árnadóttir, Gíslasonar sm. Hlíðarenda, sem er systir Hákonar sm. í Klofa sem er kvæntur Þorbjörgu Vigfúsdóttur sm. og brennisteinsfursta í Reykjahlíð.
Þorbjörg á bróðurinn Jón, föður Þórunnar ríku (sjá 1617), sem varð tengdadóttir þeirra Ögurhjóna þegar hún um 1620 giftist Magnúsi Baskaskyttu (1615). Afkomendur Magnúsar prúða – sem lést 1591 – hafa því um síðir notið nokkurs af brennisteinsgróðanum Fúsa.

Þau eftirmæli sem Ari fær, m.a. í Íslenskum æviskrám, benda þó ekki til þess að tengdir hafi mildað neitt afstöðu hans og framkomu við fólk yfirleitt, sjá 1624.

Myndir

Einnig frá árinu 1594

  • Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum
  • Enn er Guðbrands aðferð klók
← 1594Enn er Guðbrands aðferð klók1595 →Þá rektor á Brúarárbakkanum svaf