Þá rektor á Brúarárbakkanum svaf
Lag Draumur hjarðsveinsins
Þá rektor á Brúarárbakkanum svafog beið eftir ferjunni lúinnvalt út í af þreytu og þrúgum á kafog þar með var ævi hans búin.
Heimildir og samhengi
Sauðlauksdalsannáll VI, 385: ,,Drukknaði Sigurður Stefánsson skólameistari frá Skálholti með því móti hann svaf á bakkanum hjá Brúará og valt sofandi í ána".
Öldin 16. segir Sigurð á heimleið úr veislu á Mosfelli hafa lagst drukkinn til svefns á árbakkanum.
Espólín segir hann hafa sofnað á meðan ferjumanninum dvaldist.
Biskujpasögur: ,,reið drukkinn frá Mosfelli, en sofnaði við ána og sveinn hans, Ormur Narfason; valt svo sofandi ofan í ána. Er sagt síra Gísli Einarsson (1596, 1636) væri settur í hans stað til skólameistara. Liðu kennslupiltar hann misjafnt, en biskupinn, herra Oddur ...sá það besta til með honum". (1596, 1636) . Gísli var hálfbróðir Odds biskups.
Ísl. æviskrár: ,,...besta skáld á latínu, kunni söng ágætlega og var málari”.
Þar eru og talin upp nokkur rit og ljóð eftir hann á latínu.
Sigurður var sonur Þorgerðar Oddsdóttur, pr. Gaulverjabæ Halldórssonar ríka á Tungufelli, Hrun., og Stefáns Oddaprests Gíslasonar biskups Jónssonar og k.h. Kristínar Eyjólfsdóttur frá Haga, Barðaströnd, en móðuramma hennar, Ingibjörg Eyjólfsdóttir, var systir Magnúsar mókolls, biskups Skh., en kona Eyjólfs í Haga var Helga Þorleifsdóttir, Björnssonar ríka, riddara frá Skarði, sem enskir drápu að Rifi 1467.
Systir Sigurðar skólameistara var Salvör, móðir Katrínar ríku á (Stórólfs)Hvoli (1647, 1648, 1693), konu sm. Vigfúsar Gíslasonar, en þau foreldrar Bauka-Jóns. (1673, 1674, 1690).
Líkt Sigurði skólameistara fór fyrir öðrum menntamanni, ölkærum, saxi gyrðum, 1728, sjá þar.
Í Nordælu, bls. 97, hrekur Jakob Benediktsson þá ágiskun, að Sigurður Stefánsson sé höfundur latnesku Íslandslýsingarinnar Qualiscunque descriptio Islandiae þó að tímasetningin, um 1589, gangi upp. Jakob fullyrðir að höfundur sé Oddur biskup Einarsson.