Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 16. öld
  3. 1594
1594
1594

Enn er Guðbrands aðferð klók

Hljóðbrot0:00

Lag Blessuð sólin elskar allt

EEnn er Guðbrands aðferð klókallan tók af vafa:,,Almennelega messubók”mega prestar hafa.

Glúmur Gylfason · 1594

Heimildir og samhengi

Ein Almenneleg Messubók, Grallarinn 1. útgáfa. Sú síðasta, 19. útgáfa, kom 1779. Eftir það kom Magnús Stephensen í veg fyrir að Grallarinn yrði prentaður oftar, en gaf út sálmabók 1801.

5 árum eftir að Sálmabókin, Hólabókin 1589, kom út, prentar Guðbrandur Grallarann, messubók með nótum, og nefnir Eina almennelega messubók, Graduale, sem er nafn á breytilegum messulið eftir fyrri ritningarlestur, sem nú er oftast sleppt úr lútherskum messum á Íslandi, en er víxlsöngur úr Davíðssálmum með andstefi á milli versa.

Skv. Virkum dögum Hagalíns og Sæmundar, I, bls. 53, var Grallarinn sunginn á sunnudögum á Látrum á Látraströnd a.m.k. fram undir aldamót 1900 og svo mun hafa verið víðar.

Í bók Viktoríu Bjarnadóttur, Vökustundir að vestan, bls. 62-63, segir að kennarinn í Tálknafirði, Gísli Jóhannesson, nýkominn úr Reykjavík um aldamótin 1900, hafi kennt kirkjusöngfólkinu nýju lögin en: ,,Gamla fólkið var ekki sérlega hrifið af nýju lögunum, kunni betur að meta þau eldri.“

Þriðja vísuorði er ætlað að vera í stíl 16du-aldar sálma þar sem mikið er um þess konar áhersluflutning í þýðingum sem þræddu þýska frumtextann af nákvæmni.

Vefurmusik.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1594

  • Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum
  • Að Guðbrandur mátti elta Ara
← 1594Að Árhrauni bæði og Brúnastöðum1594 →Að Guðbrandur mátti elta Ara