Á Möðruvöllum varmi ei þverr
Hljóðbrot0:00
Lag Enginn kemur, enginn sést - Bj.Þ. 830
Á Möðruvöllum varmi ei þverrvafurloginn funarfyrir endann samt ei sérsex nú taldir brunar.
Heimildir og samhengi
Stærstu brunar á Möðruvöllum í Hörgárdal:
1316 eða 1317, er drukknir munkar brenndu ofan af sér klaustrið, sem stofnað var 1296.
1712, brann staðurinn, en ekki kirkjan.
1826, brann amtmannssetrið.
1865 brann kirkjan, og mynd af þeim atburði málaði Arngrímur málari Gíslason (1829-1887) og sést hún á forsíðu bókar Torfa K. Stefánssonar Hjaltalín, Eldur á Möðruvöllum, sem þessar upplýsingar eru fengnar úr.
1874, brann amtmannssetrið, Friðriksgáfa.
1902 brann Möðruvallaskóli, sjá 1880.
1937 brann prestsetrið og íbúðarhús bóndans á staðnum.