Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1902
1902
1902

Í byrjun vestra fum og fát

Hljóðbrot0:00

Lag Austankaldinn á oss blés

Lag Enginn kemur, enginn sést - Bj.Þ. 830

ÍÍ byrjun vestra fum og fáten fóru síðan að með gátán þess róðrum yrði á látárar lögðu þar í bát.

Ísfirðingar einna nyrstá Ísalandi hímavatns- þar fengu veitu fyrstvélbát, bryggju, síma.

Glúmur Gylfason · 1902

Heimildir og samhengi

Fyrsti vélbáturinn - sjá þó 1917;
2. nóvember kom frá Danmörk 2ja hestafla vél og sett í sexæring sem Árni Gíslason (1868-1952) formaður, þá búsettur á Ísafirði, átti með Sophusi J. Nielsen verslunarstjóra og gerður út þaðan eftir áramót, en frá Bolungarvík eftir páska 1903 og vilja báðir kaupstaðirnir eigna sér fyrsta vélbátinn þótt ekki væri strax tekinn í sátt (1855, 1876), er hann tók fyrst land í Bolungarvík – sjá síðar. Hugmyndin var sótt til danskra kolaveiðimanna á Flateyri sem höfðu vélbáta til veiðanna.
Í sjómannablaðinu Víkingur kemur fram árið 1947, að engin koppafeiti fylgdi vélinni frá Danmörk og var það ráð tekið að slátra hesti og nota makkafeiti.

Árni Gíslason, Gullkistan, 2. prentun, 1980, bls. 198: ,,...ekki varð mér um sel þegar ég lenti fyrst í Bolungarvík á vélbát mínum og sá hóp af mönnum standa á kambinum en aðeins fáir komu til þess að hjálpa okkur að hífa skipið; hinir gengu hlæjandi burtu ...svona voru viðtökurnar sem fyrsta vélin fékk þar". Jóhann Bárðarson telur menn hafa óttast hvað yrði um störf sín við róðra þegar allir bátar væru komnir með vél.
Sjálfsögð skylda þótti að vaða á móti og aðstoða báta í lendingu. Í Festarþætti Grágásar, kafla 61, er ákvæði sem heimilar að kveðja til alla karlmenn, sem töldust eiga heimangengt, til að koma skipum upp á land eða á sjó. Smalar undanþegnir. Sbr. Gunnar Karlsson: Lífsbjörg Íslendinga, 249.
Skjalbb.is (opnast í nýjum flipa)

1905 var vél komin í alla sexæringa Bolvíkinga. (Jón Þ. Þór). Áhrif vélvæðingarinnar urðu að sjávarafli Íslendinga þrefaldaðist til 1916 - og var togaraafli þó aðeins þriðjungurinn - og íbúafjöldi á útgerðarstöðunum margfaldaðist á þessu tímabili, -  Vestmannaeyjar, Ísafjörður.
Sbr. Ritsafn Sagnfræðistofnunar Gísli Gunnarsson, 21, 1987.

10 árum síðar, 1912, ,,reru" um 50 vélbátar frá Bolungarvík segir Jón H. Þorbergsson í Ævidögum, bls. 153.

Tvær hliðar á flestum málum. Á bls. 193 í Afbrigðum og útúrdúrum hefur Kjartan Sveinsson þetta eftir manni sem fæddur er á 19. öld: ,,Lífið varð miklu leiðinlegra á sjónum eftir að vélbátarnir komu til sögunnar. Um borð varð fámenni, menn einangruðust því ekki heyrðist mannsins mál fyrir skellum og hávaða. Á áraskipunum aftur á móti hafði verið margmenni. Ekkert utanaðkomandi rauf þögnina annað en hið taktfasta hlunk í árahlunnunum og öldurnar sem gutluðu við súð skipsins. Þarna var samlíf, þarna var félagslíf meðan setið var undir árum. Sumir menn af áhöfninni voru svo meinfyndnir að gleði og gáski og tröllahlátrar voru tímum saman í algleymingi".

Hafskipabryggja á Ísafirði 1868; vatnsveitu lögðu Ísfirðingar árið 1900; um síma, sjá1889og elliheimili kom 1921, ári fyrr en í Reykjavík.
Að Ís- og Seyðfirðingar voru fljótir / fyrstir, til að taka upp þessar og fleiri nýjungar má ekki síst rekja til norskra hvalveiðimanna á Vest- og Austfjörðum sem lögðu á þessum árum brautarteina, vatnsleiðslur og síma að og milli húsa sinna þar. Þar lærðu íslenskir járn- og blikksmíði og meðferð véla, sbr. 1904.
Þegar hvalveiðum lauk í byrjun annars áratugar 20. aldar keyptu útgerðir m.a. brautarteinana.
Sjá og Jón Þ. Þór, Sjósókn og sjávarfang, bls. 204 og um fyrstu vélbátana fjallar hann í Ránargull, bls. 115.

Jón Þ. Þór: Höndlað við Pollinn, bls. 82: ,,Þegar tuttugasta öldin gekk í garð voru samgöngur og vöruflutningar á landi í skötulíki á Íslandi og minntu um margt á Grænland nú á dögum. ...Alla þungavöru varð að flytja sjóleiðis og fyrir vikið voru góðar hafnir og hafnarmannvirki lykilatriði í vexti og viðgangi kaupstaða".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

(Heimildir: Jakob Jakobsson, Faðir minn, skipstjórinn, 138, 156; Valdimar Haukur Gíslason, Vestanglæður, bls. 221).
Einnig: Vefurmyndasafn.isafjordur.is (opnast í nýjum flipa)
Jóhann Bárðarson: Áraskip, Ægisútgáfan, 1964, bls.19.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurisafjordurhotels.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurboreaadventures.com (opnast í nýjum flipa)

Vefurisavia.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1902

  • Á Möðruvöllum varmi ei þverr
  • Kaupmenn úti öll með spjót
  • Halldór Laxness léði svar
← 1901Austfirðingum opnast heimur1902 →Á Möðruvöllum varmi ei þverr