Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1902
1902
1902

Kaupmenn úti öll með spjót

KKaupmenn úti öll með spjótaflsmuni og kynngier Hallgrímur Kristins kom á fótKEA í Vöðlaþingi.

Eyranna fóru beggja bilað bryggju skipum gefiþar Kaupfélags- Lista- og Grófargilgengur frá Torfunefi.

Glúmur Gylfason · 1902

Heimildir og samhengi

Stofnfundur forvera Kaupfélags Eyfirðinga, KEA, var haldinn á Grund 19. júní. 1886. Nefndist Pöntunarfélag fyrsta hálfa árið.
Á aðalfundi 1902, þegar Kaupfélagið ,,var að grotna niður" skv. Páli H. Jónssyni, bls. 80 í bókinni, Úr Djúpadal að Arnarhóli, var kosinn kaupfélagsstjóri eldhuginn Hallgrímur Kristinsson (1876-1923), sem1917 varð forstjóri SÍS, sem telst stofnað þetta ár á Ystafelli í Kinn sem samtök þriggja þingeyskra kaupfélaga.
Með Hallgrím í forystu fóru hjól KEA að snúast eftir að hann hafði reist til Danmerkur og aflað viðskiptasambanda og kynnt sér samvinnurekstur þar 1903-1904.
Litlu húsi félagsins frá 1888, að Hafnarstræti 90 á Akureyri, var þá breytt í sölubúð, en margstækkað síðan.

Eitt, sem Hallgrímur tókst á við, voru þeir aldagömlu (1639) viðskiptahættir að sýna mönnum mismunandi viðmót eftir virðingum, stétt, efnum og bústærð.
Stórbændur höfðu t.d. setið fyrir um afgreiðslu og verið boðið með hneigingum inn á kontór, þegið þar í glas og samið um önnur og betri kjör en þeir smærri fengu.
Slíkir voru víst ekki þeir fyrstu sem gengu í samvinnufélag þar sem afgreitt var í réttri röð og allir hlutu sömu meðferð hvert sem innleggið var.
Fyrrnefnd lýsing á þó a.m.k. ekki við um Eyrarbakkaverslun frá 1847; sjá 1886 hér til hliðar og 1639.
Tilvísun: Úr Djúpadal að Arnarhóli, Sagan um Hallgrím Kristinsson eftir Pál H. Jónsson, bls. 133.

Jón Þ. Þór: Höndlað við Pollinn, bls. 80: ,,Akureyri breyttist mikið á 19. öld. Þegar tuttugasta öldin gekk í garð hafði hún vaxið úr örsmáum verslunarstað í blómlegan bæ. Íbúum fjölgaði nánast ár frá ári og umsvif verslananna, sem enn voru kjarni atvinnulífsins, jukust sífellt. ...Menningarlíf stóð þar með meiri blóma en annars staðar í Norðlendingafjórðungi og samgöngur til annarra landshluta og útlanda, einkum Danmerkur og Noregs, voru greiðar eftir því sem þá gerðist hér á landi".

Bls. 90: ,,Þegar húsið á Torfunefi reis af grunni hafði enn ekkert verið ákveðið um bryggjusmíði á þessum slóðum. Bryggjan kom síðar og þá varð öllum ljóst að þeir kaupfélagsmenn hefðu ekki getað valið betri stað undir pakkhús sitt, það stóð við efri enda bryggjunnar".
Verslanir á Akureyri, t.d. Höepfner, og Oddeyri, Grána, fluttu vörur með bátum úr skipum sem lágu á Pollinum eða notuðu færanlegar smábryggjur sem teknar voru upp á land á vetrum.

Bls. 88: ,,Upp af Torfunefinu gengur gilskorningur allvíður. ...Um aldamótin 1900 þekktu Akureyringar það sem Grófargil. ...Akureyringar ...gáfu gilskorningnum nýtt nafn ...Kaupfélagsgil. ...Á allra síðustu árum hefur það stundum verið nefnt Listagil".

Hér skrifar Jónas Jónsson m.a. um Hallgrím Kristinsson.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefuradventures.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1902

  • Í byrjun vestra fum og fát
  • Á Möðruvöllum varmi ei þverr
  • Halldór Laxness léði svar
← 1902Á Möðruvöllum varmi ei þverr1902 →Halldór Laxness léði svar