Kóngur hefur oss lærðan léð
Lag Einu sinni átti ég hest
Kóngur hefur oss lærðan léðlækni, honum fegin,þótt lengist við það lífsins streðuns lempast hinum megin.
,,Rannveig skyldi skoðast meyja" -- Skúli Bjarna spyr.,,Þetta hefðirðu þurft að segjaþremur tunglum fyrr".
Heimildir og samhengi
Bjarna Pálssyni (1719-1779), veitt embætti landlæknis, sem nefndist landfisikus.. Verður eini skólamenntaði læknir á landinu. En, a.m.k. frá Hrafni Sveinbjarnarsyni á Hrafnseyri, d. 1213, voru til menn, ekki síst prestar, sem vissu ráð við kvillum og komu jurtir þar oft við sögu. Til ,,handlækninga" kunnu menn líka, sbr. upphaf Grettissögu: ,,Önundur hét maður" (tréfótur), sbr. og1629hér á síðu.
Bjarna var reistur embættisbústaður af steini á Nesi við Seltjörn 1763. Seltjarnarnes þá lá vel við samgöngum á sjó þegar lítið var um vegslóða á landi og hjólið lítt þekkt. Þá eins og nú var þar á Nesinu oftast ókeypis orka í boði sem skilaði fleyi hratt og örugglega áleiðis enda Seltirningar þá og síðar taldir hvað snjallastir að haga seglum.
Fyrstu árin dvaldist landlæknir á Bessastöðum og æu Víðey hjá Skúla fógeta. Sagt er að eitt sinn hafi þá Skúli sagt við Bjarna að hann mætti ekki barna hana Rannveigu fyrir sér. Rannveig var dóttir Skúla. Svaraði Bjarni þá: ,,Þetta hefðirðu átt að segja fyrr".
Bjarni, sem var söngvinn og skáldmæltur, fékk Rannveigar og var elsta barn þeirra Steinunn, sem giftist Vigfúsi Þórarinssyni sýslumanni á Hlíðarenda, en meðal þeirra barna var Bjarni skáld Thórarensen og miklar og góðar söngraddir þaðan ættarfylgja..
Önnur dóttir þeirra Bjarna og Rannveigar var Þórunn, sem giftist Sveini Pállssyni náttúrufræðingi (sjá 1794) og héraðslækni alls Suðurlands, sjá 1799.
Hvort Skúli hafi haft úr háum söðli að dett þegar hann lagði á ráðin við Bjarna má sjá hér við árið 1737.
Bjarna lækni var ætlað að kynna öðrum lækningar. 16. mars 1762 stóðst sá fyrsti próf hjá honum. Sá var nafni hans, Latínu-Bjarni djöflabani (1707-1790) er bjó að Knerri við Breiðuvík á Snæfellsnesi.
Bjarni læknir Pálsson má hafa verið góður fræðari þar sem nafna hans, djöflabananum, hafði verið vísað úr Skálholtsskóla 1732 vegna tornæmis (Páll E.Ól.). Sá orti þá:
Héðan í burt með friði ég fer
feginn og hjartaglaður
veit ég ei hvort verra er
Víti eða Skálholtsstaður.
Getið er í annálsvert.is læknisferðar Bjarna til Stykkirhólms 1763, sem þótti annálsverð.
Sjá bls. 20 í ritgerð Hilmars Garðarssonar, Saga Veðurstofu Íslands, útg. 1999: SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa) á 8 mín. og 20 sek. ,,hanaegg"
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)