Biskup vegur, mælir, metur:
Lag Jólasveinar 1 og 8
Biskup vegur, mælir, metur:mun oss fyrir klerkum séðmeðan Högni háttað geturhenni Guðríði sinni með.
Heimildir og samhengi
Í skrúðfylkingu á prestastefnu á Þingvöllum gengu þar hempuklæddir séra Högni, Breiðabólstað í Fljótshlíð, Sigurðsson (1693-1770) og 8 prestsvígðir synir þeirra Guðríðar Pálsdóttur (1594-1662).
Þau eignuðust 17 börn, 15 komust upp - sjá 1762.
Eiga margir nánir afkomendur þeirra eftir að koma við sögu, svo sem sr. Þorvaldur Böðvarsson skáld (1791) og bróðir hans Guðmundur, einnig skáld og pr. Kálfatjörn, faðir Þorleifs Repp (1826).
(Öldin 18.; Ísl. æviskrár; Árni Óla, Strönd og Vogar).
Um hrikaleg mistök Högna í samskiptum við kotbýling í túninu á Breiðabólstað fjallar Vigfús Guðmundsson frá bls. 58-60 í bókinni Breiðabólstaður í Fljótshlíð, en bendir þar á ítarlegri frásögn Jóns Helgasonar, biskups, í ,,Tómas Sæmundsson", bls. 21-25.
Missti þar sr. Högni prestinn tímabundið sem og þrír synir hans.