Enn nam Hekla ösku dreifa
Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915
Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915
Enn nam Hekla ösku dreifaillt í landimenn og dýr á myrkri þreifamöl og sandi.
Í Sæmundarhlíð og við Húnaflóaei hleypt né brokkaðsmalar ekki heyrast hóahreytt né strokkað.
Heimildir og samhengi
Heklugos með gríðarlegu öskufalli milli Blöndu og Héraðsvatna. ,,Heyrðist þar hvorki strokkhljóð né smalar hóa” var viðkvæðið um ástandið öskufallsdagana fjögurra á því svæði.
Saga frá Skagfirðingum I, 98, úrdráttur: Um dagmál 3ja dag Apriliis sló myrkva miklum norður yfir landið sem svartnætti væri; fylgdi þar með sandfall ógurlegt, drunur og brestir; stóð myrkrið um 3 stundir og kveiktu menn ljós í húsum og lásu Guðs orð því flestir óttuðust og hugðu sumir komin heimsslit. Síðan birti upp og heyrðust hinir sömu brestir og héldust löngum við um vorið.
Eftir sandfallið gerði norðanhríð mikla og rak þá inn svo mikinn ís að hafþök varð og bannaði fiskibjargir allar. Tók sá ís frá Látrabjargi og norður og austur fyrir landið og að sunnan allt að Reykjanesi.
Lítt gætti fellis af fjársýkinni um Skagafjörð því að peningur féll af sulti og megurð eftir sandfallið.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)