Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1766
1766
1766

Saurbæjarklerkur kóng nam þreyta

Hljóðbrot0:00

Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915

SSaurbæjarklerkur kóng nam þreytameð kveini og gellibiskup vildi hann þar heitaað Helgafelli.

Glúmur Gylfason · 1766

Heimildir og samhengi

Séra Ólafur Gíslason (1727-1801), aðstoðarprestur föður síns í Saurbæjarþingum, Dölum, frá 1756, en sóknarprestur þar frá 1765, kynnir þá hugmynd fyrir stjórninni, að setja biskupsstól að Helgafelli og býðst til að verða þar biskup.
Í bók Steinunnar Kristjánsdóttur, Leitin að klaustrunum, bls. 233, segir frá prestaskóla í Helgafellsklaustri, a.m.k. á 15. öld. Þar var stærra bókasafn en á öðrum klaustrum. Hugmynd sr. Ólafs Gíslasonar um biskupsstól á Helgafelli þarf því ekki vera fráleitust þeirra sem með honum kviknuðu.

Á bls. 48 greinir Öldin átjánda frá ósk am. Ólafs Stefánssonar, studdri mútum, til stam. Rantzau, um hervernd gegn Ólafi Saurbæjarpresti ella yrði honum vísað úr landi enda sér og sínum ekki óhætt líf fyrir honum.

1797 ritaði Ólafur stiftamtmaður, stjórninni bréf og fór fram á að nafni sinn yrði fluttur til vistar í einhverri eyju á Breiðafirði. Ísl. æviskrár segja um Ólaf prest: ,,geðbilaður á köflum, svo að hélt við fullu æði".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Skoða mætti í þessu sambandi 90 sekúndur af eftirfarndi slóð:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Snarruglaður prestur:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1766

  • Enn nam Hekla ösku dreifa
← 1765Fjórum árum fátt í þrjá1766 →Enn nam Hekla ösku dreifa