Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1767
1767
1767

Húslestra Magnús litli les

Hljóðbrot0:00

Lag Kálfar tveir í kúamynd

HHúslestra Magnús litli leslétt úr Postillunniungur hélt sig ei til hlésaldinn það ei kunni.

Glúmur Gylfason · 1767

Heimildir og samhengi

Magnús Stephensen (1762-1833) altalandi ársgamall og kunni að eigin sögn 30 sálmvers utanbókar, sum löng, og hefði lesið húslestra úr Vídalínspostillu 5 ára, þ.e., 1767.
Síðar á ævinni kunni hann lítt að meta þá postillu þegar stúdentar í Höfn gáfu hana þar út af fátækt sinni, beinlínis til þess að hrella hann 1827.
Hjá Aðalgeir Kristjánssyni kemur fram í ,,Nú heilsar þér á Hafnarslóð", bls. 153, að ,,Magnús Stephensen hafi hindrað útgáfu Postillunnar í 30 ár ...og sá enn ástæðu til að bregða fæti fyrir útgáfu postillunnar". Þar sést að Magnús reyndi að hindra stúdentana og skrifaði Kansellíinu bréf með tilvitnunum í Postilluna þar sem myrkrahöfðingjans var getið. Þrátt fyrir það mælti Kansellíið með því að stúdentarnir fengju 600 rd. vaxtalaust lán hjá ,,Financerne" til útgáfunnar.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)



Myndir

Einnig frá árinu 1767

  • Þeim sem eitthvað af sér gera
← 1766Enn nam Hekla ösku dreifa1767 →Þeim sem eitthvað af sér gera