Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1893
1893
1893

Vistar- hlutum bandið bera

Hljóðbrot0:00

Lag Einn var að smíða ausutetur

VVistar- hlutum bandið beraog byggðum ei við sjómeðan þingið sátu séraSigvaldi & co.

Glúmur Gylfason · 1893

Heimildir og samhengi

Einar Laxness: Íslands saga III, bls. 132: ,,Smám saman áttu kröfur um afnám vistarbands vaxandi fylgi að fagna á alþingi þar sem togstreita milli landbúnaðar og sjávarútvegs magnaðist. Hafði Arnljótur Ólafsson einkum forgöngu á alþingi um afnám vistarbands, sem hann taldi brjóta gegn atvinnufrelsi og óæskilegt að slíkar hömlur hvíldu á vinnuafli”. Hann bjó þá í Sauðanesi á Langanesi, þ.e., í nágrenni Þórshafnar.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Frumvarp um að leysa vistarbandið fellt 1877, en samþykkt á alþingi 1893, kom til framkvæmda 1894.

Samnefnarinn ,,séra Sigvaldi" stendur fyrir þau gildi sem lesa má út úr nefndri persónu í skáldsögu Jóns Thoroddsen, Manni og konu. (1869).

Arnfirðingar þóttust þekkja séra Sigvalda í sínum prestafeðgum í Selárdal og léku ,,Mann og konu” í eigin leikgerð í Selárdal á þrettándanum 1913 og oftar. (Sr. Sigurjón Einarsson, Undir Hamrastáli, bls. 27). Sjá 1900.

Séra Friðrik Eggerz í Akureyjum mátti vita sig liggja undir sama grun og tíundar í ævisögu sinni að hann hafi hryggbrotið Jón Thoroddsen þegar hann sóttist eftir dóttur hans - einnig málastapp við ekkjuna á Reykhólum, móður Jóns, um eignarhald á eyjum á firðinum.

Jón Hjaltason, Saga Akureyrar I, 173: ,,Í augum margra bænda voru þéttbýlisstaðirnir ekki annað en eitt uppgönguauga óreiðunnar í samfélaginu, athvarf vinnufólks sem ekkert nennti að taka til hendinni”.

Friðrik G. Olgeirsson segir í Langnesingasögu I, bls. 247, að af Langanesi hafi 227 manns flust til Vesturheims árin 1876 til 1909. Og: ,,Viðbúið er að ef þorpsmyndun á Þórshöfn hefið verið komin lengra áleiðis með þeirri saltfiskvinnu sem sjávarþorpunum fylgdi hefði þessi landflótti aldrei orðið svona mikill".

Steingrímur Sigurðsson (1857-1942) ,,Möðruvellingur" 1886, var fenginn á öndverðum þorra 1894 til að fylgja sm. Benedikt Sveinssyn, 67 ára, (alþingismanni( í snó og ófærð úr Kelduhverfi til Seyðisfjarðar, þar sem BS skyldi vera setudómari í meiðyrðamáli sýslumannsins þar gegn ritstjóra Austra, Skapta Jósepssyni (sjá 1901 og 1874). Gista máttu á 8 bæjum á leiðinni. Ókunnugt um úrslit meiðyrðamálsins nema að eftirfarandi frásögn Seingríms gefi vísbendingu, prentuð í N'yjum kvöldvökum 1959: ,,Oft hafði vistarbandið borið á góma með okkur sýslumanni. Var ég svarinn fjandi þess og tók Benedikt jafnan í sama streng, er við vorum tveir einir og var engu miður skeleggur. Hafði hann stór orð um að það væri þrælalög, er hæft gæti blökkumönnum og öðrum ruslaralýð suður við Miðjarðarhaf, en eigi frjálsbornum Íslendingum. En mjög þótti mér annað hljóð í strokknum á kvöldin, er sýslumaður sat að sumbli með gestgjöfum sínum. Dró hann þá jafnan taum bænda og kvað afnám hjúalaganna helbera óhæfu".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

,,Eiginleg vistarskylda var afnumin með lögum í Danmörku og Noregi 1854" (Heimild, Vilhelm Vilhelmsson).

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1893

  • Leitaði svara á Svalbarði Einar
  • Hannes hýrna tók
  • Bjarna- fyllti bátinn mar
← 1893Leitaði svara á Svalbarði Einar1893 →Hannes hýrna tók