Bjarna- fyllti bátinn mar
Lag Snemma lóan litla í
Bjarna- fyllti bátinn maren Bakka, hans sem Stokkseyrar,og Hússins hróður varirá orgel lék öll ætt hans þarÞuru - að Pál und belti bar -berum guðlaun þar fyr.
Ef þú stendur við altariðertu séra Jónen ef þú situr við orgeliðetu Drottins þjón.
Heimildir og samhengi
Fæddist Páll Ísólfsson, dómorganisti í Reykjavík og tónskáld, d. 1974, sonarsonur Bjarna Pálssonar f. 18.06. 1857 SyðraseliÍsmús (opnast í nýjum flipa), Stokkseyrarhreppi, sem fórst í lendingu á báti sínum 24.02. 1887. Bjarni lærði á orgelharmoníum og / eða píanó hjá frú Sylvíu Thorgrímsen og dóttur hennar og nöfnu í Húsinu á Eyrarbakka. (1852, 1886, 1887). Eyrarbakki ávallt nefndur Bakki í tali fólks, a.m.k. á meðan hann var verslunarmiðstöð Suðurlandsundirlendisins segir Oddur Oddsson í bók sinni, Sögnum og þjóðháttum, 1941.
Páll Kr. Pálsson í Organistablaðinu 1972: ,,Bjarni Pálsson, varð ungur forsöngvari í Stokkseyrarkirkju og fyrsti organleikari þar eftir að hljóðfæri kom í kirkjuna, árið 1876. Bjarni var mikill mannkosta- og gáfumaður og þótti það hinn mesti mannskaði er hann drukknaði ásamt 5 öðrum við Þorlákshöfn í febrúar 1887.
Þar fórust og 2 aðrir organistar. Bjarni varð aðeins 29 ára gamall".
Sonur Bjarna var Friðrik, organisti og tónskáld í Hafnarfirði. Þrír bræður Bjarna, Jón, Ísólfur og Gísli tóku við organistastarfinu að bróður sínum látnum. Of langt yrði að nefna allt tónlistarfólk af þessari ætt, en það sem sagt er í síðustu línunum á að sjálfsögðu við Pál Ísólfsson, organista og tónskáld (1893-1974). Móðir Páls var Þuríður Bjarnadóttir frá Símonarhúsum á Stokkseyri. Tónsmíðar Páls eru enn fluttar við vinsældir.
Á fyrstu 20 blaðsíðum bókar Guðna Jónssonar, ,,Grímur Gíslason í Óseyrarnesi", er fjallað um forfeður Margrétar Gísladóttur, Syðra-Seli, móður Bjarna Pálssaonar og þeirra bræðra.
Dr. Páll var hrókur alls fagnaðar og settu þeir stóran svip á mannlífið, hann, séra Bjarni, Dómkirkjuprestur og Kjarval listmálari. Það gerði líka Óli Maggadon á sinn hátt.
Kjartan Sveinsson, Afbrigði og útúrdúrar, 116: ,,Óli Maggadon f. 1902, dó á Fábjánahæli Reykjavíkur 1974.
Bls. 117: ,,Páll Ísólfsson var kominn frá Þýskalandi frá músíknámi eftir frægðarför. Hann var stórkostlegur hljómlistarmaður ...Hann hélt að sjálfsögðu drynjandi hljómleika í Dómkirkjunni og bauð flestum höfðingjum og andans mönnum höfðuborgarinnar. Kjarval var sannarlega ekki gleymt og fékk hann tvo aðgöngumiða sem aðrir. Hann tók með sér Óla Maggadon. Eftir tónleikana talaði Páll við margt stórmenni og hlaut almennt lof. Meðal annars spurði hann Kjarval hvernig tekist hefði. Kjarval svaraði: ,,Óla, vini mínum, þótti þetta gott." Páll leit til Óla og vildi fá þetta staðfest, en Óli svaraði aðeins með tveimur orðum: ,,Betra næst".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Heimildarmynd um Pál Ísólfsson: