Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1888
1888
1888

Er Héraðs- á vötnunum hrukku' í kaf

Hljóðbrot0:00

EEr Héraðs- á vötnunum hrukku' í kafá hrútinum lenti byrðinsynti að landi og sitt líf gafsauðurinn fyrir hirðinn.

Sauðheimskir, þráir og sífellt með dyntisvo þegar hvolfdi á Vötnunum bátmeð ósyntan fjárhirðinn sauðurinn syntiþá seldur til Bretlands og Tjallinn hann át.

Glúmur Gylfason · 1888

Heimildir og samhengi

Jóh. 10, 11: ,, ...góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.“

Skagfirskur annáll Kristmundar Bjarnasonar 1847-1947, I, segir 1888 frá sauðaflutningum á Héraðsvatnaósi. Tveir menn, Páll og Þorkell, höfðu tekið það verk að sér fyrir kaupmann frá Englandi.
,,Þeir höfðu sauðina lausa í ferjunni, riðluðust þeir er komið var út á miðjan ós og fyllti ferjuna og sauðirnir hrukku útbyrðis, svo og mennirnir. Er Páli skaut upp varð sauður fyrir honum, og greip Páll heljartaki í herðakamb hans og lagði sauðurinn þegar í stað á leið til lands með ósyntan manninn og björguðust báðir heilu og höldnu í land. Þorkell drukknaði”.

Um sauðasölu, sjá 1867, 1872, 1896.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Sauðkindur synda:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Sauðurinn Gorbastjoff ásamt Guðna Ágústssyni og Sigurði Sigurðarsyni dýralækni:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1888

  • Löngum við Svaðbæli loðir sú rykt
  • ,,Héðan fer enginn merkismaður"
← 1888Löngum við Svaðbæli loðir sú rykt1888 →,,Héðan fer enginn merkismaður"