hún
Lag Enginn þarf að óttast síður
hún
Hornaflokkar til Helga eru raktirhann skal nú standa slökkviliðsvaktir.Hrifla og Kjarval í heim komu naktir.Í hálfa stöng fáni á Stað núna blaktir.
Ár þetta nam hér lúpínan landleið þykir sumum en öðrum grandkostir og lestir? bæði í blandbláan litar hún eyðisand.
Jafnræði þykir með Hriflu og hennihún þykir ágeng en hann slunginn penniseint trúa margir í för þeirra fennifetuðu slóðina aðrir þótt renni.
Heimildir og samhengi
Helgi Helgason (1848-1922) skipaður slökkviliðsstjóri í Rvk.
Árið 1854 hét starf þetta ,,eldsvoðastillir".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
2að og 3ja atriði á slóð: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Á Þingvallafundi 27. júní frumflutti hornaflokkur Helga lag hans við texta Steingríms Thorsteinsson, Öxar við ána, sem Helgi hafði prjónað aftan við: ,,Fram, fram, aldrei að víkja o.s.frv."
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fleiri hafa prjónað aftan við texta Steingríms: Vefurthrainn.eyjan.is (opnast í nýjum flipa)
Helgi hafði sem aðrir hrifist af leik lúðrasveitar sem fylgdi Kristjáni IX. 1874 og stofnaði 1876 fyrstu lúðrasveitina, Lúðraþeytarafélag Reykjavíkur.
Helgi einnig texta- fiðlu- orgel- húsa- og skipasmiður.
Þjóðlið Íslendinga, þjóðernissinnuð stjórnmálasamtök í S-Þingeyjarsýslu 1884-1888, boðuðu til Þingvallafundar 1885 um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Félögum Þjóðliðsins skyldi skipað í 6-16 manna sveitir og sveitum í fylkingar og foringi yfir þeim var kjörinn Pétur Jónsson á Gautlöndum, síðar ráðherra, sonur Jóns alþm. á Gautlöndum. (1889).
Heimild: Einar Laxness, Íslands saga III, bls. 155.
* Jónas Jónsson frá Hriflu, +1968. Um hann er m.a. fjallað 1928, 1930, 1935, 1939.
* Jóhannes Kjarval, listmálari +1972. Um hann eru margar sannar sögur sagðar. Kjartan Sveinsson, skjalavörður, segir m.a. þessa á bls. 104 í Afbrigði og útúrdúrar: ,,...labbaði Kjarval sig yfir Austurstræti til Magnúsar Sigurðssonar bankastjóra í Landsbankanum og falaði 10 þúsund króna lán.
,,Hvað ætlar þú að gera við peningana, Kjarval minn?"
,,Ég ætla að leggja þá hérna inn á sparisjóð. Þeir segja að það sé gott að eiga peninga á sparisjóði". Landsbankinn var stofnaður með lögum þetta ár, tók til starfa 1886, og var til húsa í Bankastræti 3, sem reist var 1881, nú verslun, Stella.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Lést 17. apríl séra Ólafur Johnsen á Stað á Reykjanesi, f. 1809, Einarsson borgara, Rvk., bróðir Ingibjargar konu Jóns forseta, faðir miðkonu sr. Matthíasar Jochumssonar (1882, 1911, 1918, 1920) og Þorláks Ó. Johnson sauðaútflutnings- og kaupmanns. (1917).
Nokkrar lýsingar á Ólafi eru hjá Lúðvík Kristjánssyni í Vestlendendingum I, bls. 100 og á honum sagðir lestir engu færri en kostir.
Sr. Ólafur dó eftir 10 ára ekkisstand, en í desember 1851 dóu 6 börn þeirra hjóna úr svokallaðri barnaveiki, sem þá gekk.
Kona sr. Ólafs var Sigríður dóttir sr. Þorláks Loftssonar, Móum Kjalarnesi og md. Sigríðar dóttur sr. Markúsar sem fjallað er um1800, en þá hafa þau feðgin bjargast úr mannskæðu ferjuslysi á Ölfusá.
Sonur Þorláks var Ólafur Þ. Johnson, fyrsti heildsalinn (1906) ásamt L. Kaaber. Kona Þorláks, móðir Ólafs, var Ingibjörg Bjarnadóttir frá Esjubergi og hlaut Þingholtsstræti 29 það nafn, en Ólafur Þ. Johnson keypti það ófullgert af Obenhaupt, dönskum kaupmanni, og gerði að einu glæsilegasta húsi Íslands fyrr og síðar. Sjá1800.
Heimildir: Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 176;
Íslensku ættarveldin; Ísl. æviskrár 1913, 1919.
Öxar við ána: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Í Bændablaðinu 18. des. 2025 á bls. 47 segir Kristján Fr. Friðbertsson, plöntunörd, að lúpínan, eða úlfabaun,hafi fyrst komið til Íslands 1885 og teljist útlend samkvæmt lista Náttúrufræðistofnunar, sem gefur þeim plöntum íslenskan ríkisborgararétt sem hingað eru komnar árið 1750 og vaxa hér enn. Þar segir og að sú (erlend) planta sem aðlagast of vel geti fengið nafnbótina ágeng.