Utan bóndi hélt um haf,
Lag Veröld fláa - Bj.Þ. 874
Utan bóndi hélt um haf,að heiman – burt frá kúnum -ævisögu út svo gafEiríkur frá Brúnum.
Heimildir og samhengi
,,Lítil ferðasaga” kom út eftir Eirík Ólafsson (1823-1900), bónda á Brúnum.
Þar sagði frá för hans til Kaupmannahafnar 1876 þar sem P. Bryde, (1905) kaupmaður sem hann verslaði við í Eyjum, bauð honum í Tívolí hvar hljómsveitin lék ,,Eldgamla Ísafold" ? í þrígang ,,honum til heiðurs"?! (Sverrir Kristjánsson, Bóndinn á Brúnum, 14).
Eiríkur þáði einnig heimboð til Valdimars prins og Kristjáns IX. Gaf þeim kistil með e.k. dulkóðaðri læsingu og hitti bæði hestinn sem hann hafði selt prinsinum og einnig stórfjölskyldu kóngsins, þjóðhöfðingja í mörgum evrópulöndum. Eiríkur gerðist í Höfn mormón og fór til Salt Lake City, en hvarf frá því aftur. Þetta varð Halldóri Laxness að yrkisefni í skáldsögunni Paradísarheimt.
Í Páfinn situr í Róm, bls. 100, líkir Jón Óskar, afturbata Sovétaðdáandi, sér við Eirík: ,,...bert var orðið í blöðum þeirra sjálfra, að prestar þeirra (mormóna) trúðu á Adam, en ekki þann guð biblíunnar sem Eiríkur frá Brúnum vildi tilbiðja. Þegar Eiríkur varð þess vís, að hann hafði verið blekktur, fylltist hann réttlátri reiði. Hann sneri aftur til Íslands og sagði sannleikann".
Ingólfur Gíslason, Læknisævi, bls. 123: ,,Eitt sinn var það, að Guðmundur Björnsson (sjá 1909) kallaði á mig og bað mig ganga með sér inn að sjó. Komum við þar að lágreistum kofa og inn í lítið hreinlegt herbergi. Þar lá aldraður maður með þjáningarsvip og fékk ég að vita að þetta var hinn þekkti ævintýramaður - í góðum skilningi - og rithöfundur, Eiríkur á Brúnum, sem þjáðist af þvagteppu og sagði G.B. mér að hann hefði ofvöxt í blöðruhálskirtli. Varð nú að reyna að losa hann við þvagið, en það var erfitt og sárt. því læknirinn hafði aðeins málmþvaglegg við hendina. Með þeim fínu og mjúku gúmmíleggjum sem síðar urðu tiltækir, hefði þetta verið miklu auðveldara og sársaukaminna. ... Það kom nú í minn hlut (læknanemans) að ganga til hans daglega, nokkurn tíma, og losa hann við þvagið, og sat ég stundum hjá honum um stund og hlýddi á skemmtilegar sögur frá ferðalagi hans, hann sagði vel frá og greindarlega, en svo kom að því að hann missti rænuna og dó saddur lífdaga, að því er mér virtist."
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Heimildir: Dr. Ólafur R. Dýrmundsson í Bændablaðinu 24. tbl. 2015, bls. 22; Öldin okkar;
Lítil ferðasaga.
Slóð á Steina undir Steinahlíðum:
MyndFlickr (opnast í nýjum flipa)