Árið 1878

t.d.

5 vísur frá árinu 1878
  1. 1878Lag: Veröld fláa - Bj.Þ. 874

    Reykjanes fær vita og vörð

    vel þá skipum miðar.
    Í Gönguskörðum við Skagafjörð
    skelfur fé og riðar.

    Kveikt var 1. desember á fyrsta vita landsins, Reykjanesvita á Valahnjúk. Frásögn og mynd má sjá á slóðinni: http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2214251 Vitavörður ráðinn og fékk 800 kr. í árslaun og hús reist…

    Hlusta
    ReykjanestáNúv. Reykjanesviti, frá 1929Bær og heimilisfólk að Veðramótum 1891+3
  2. 1878Lag: Veröld fláa - Bj.Þ. 874

    Utan bóndi hélt um haf,

    að heiman – burt frá kúnum -
    ævisögu út svo gaf
    Eiríkur frá Brúnum.

    ,,Lítil ferðasaga” kom út eftir Eirík Ólafsson (1823-1900), bónda á Brúnum. Þar sagði frá för hans til Kaupmannahafnar 1876 þar sem P. Bryde, (1905) kaupmaður sem hann verslaði við í Eyjum, bauð honum í Tívolí hvar…

    Hlusta
    Eiríkur Ólafsson frá Brúnum Fjölskylda Kristjáns IX. sem Eiríkur hittiMusteristorgið í Salt Lake City+3
  3. 1878Lag: Litlu andarungarnir

    Kom til landsins kandidat

    kunni á mörgu skil
    frætt um Jón og Gunnu gat
    að Guð væri ekki til.

    Kristni á Íslandi IV, bls. 41: ,,Kom til landsins kandídat með láði frá Hafnarháskóla og eftir honum tóku að berast þau tíðindi út um bæinn eins og verslunarfréttir, að enginn Guð væri til”. Fleiri þeirrar trúar komu…

    Hlusta
    Köbenhavns UniversitetGeimfari á tunglinu+5
  4. 1878Lag: Reið ég Grána yfir ána

    Yfirvöldin ekki launa

    einhvern skottulækni á Krók
    allt sem varðar kírúrg kauna
    kennt skal bæði og lært af bók.
    1 erindi til viðbótar

    Kristmundur Bjarnason, Skagfirskur annáll 1847-1947, bls. 152: ,,4. sept: Júlíus Halldórsson héraðslæknir í 8. læknishéraði ...settur læknir í Skagafirði. 20. sept: Sýslunefndarmaðurinn í Sauðárhreppi, Þorleifur Jónsson…

    Hlusta
    Skagafjörður norðan SauðárkróksSauðárkrókur, götumyndSauðárkrólkur+3
  5. 1878

    Ebenezer naskur, sá,

    nýju tók að hyggja
    Kolviðar- á hóli há
    hótel réði byggja.

    Íslenskar æviskrár I, 311: Ebenezer Guðmundsson (1844-1921). Gullsmiðiur. ... Hneigðist snemma að smíðum, tók sveinsbréf í gullsmíðurm ... setti fyrstur manna (1878) bú og gistihús að Kolviðarhóli. (Sjá 1843).…