Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1878
1878
1878

Kom til landsins kandidat

Hljóðbrot0:00

Lag Litlu andarungarnir

KKom til landsins kandidatkunni á mörgu skilfrætt um Jón og Gunnu gatað Guð væri ekki til.

Glúmur Gylfason · 1878

Heimildir og samhengi

Kristni á Íslandi IV, bls. 41: ,,Kom til landsins kandídat með láði frá Hafnarháskóla og eftir honum tóku að berast þau tíðindi út um bæinn eins og verslunarfréttir, að enginn Guð væri til”.
Fleiri þeirrar trúar komu síðar “brynjaðir trúleysi og tískuraunsæi” svo sem Ólafur Davíðsson (1903) eins og fyrrum nágrannni hans, Valtýr Stefánsson, ritstjóri Morgunblaðsins, orðaði það.

Kristleifur Þorsteinsson: Úr byggðum Borgarfjarðar, bls. 315:
,,Það er fyrst eftir 1880 sem kirkjurækni og helgihald fer smátt og smátt að haggast úr sínum fornu og föstu skorðum. Svo var og með ýmsa gamla kirkjusiði. Þá fer einnig að slá fyrir kenningarþytum úr ýmsum áttum sem blása nöprum anda á kirkjur og klerka. Átti sá andi meðal annars þátt í því að draga úr húslestrum".

Dr. Jakob Jónsson í Faðir minn, bls. 202: ,, ...faðir minn er prestur á þeim tíma, sem sennilega hefur gengið nær kennimannastéttinni en flest önnur tímabil ...öll alþýða manna hafði gefið sig á vald trúarbragða efnishyggjunnar, og hver ómenntaður strákur gat gortað af því að ,,vísindin" hefðu slegið kirkjuna út af laginu". Ritað um séra Jón Finnsson (1865-1940).

Páll Skúlason, Pælingar, 260: ,,...(hagnýtt) guðleysi á helstu rót sína að rekja aftur til 18. aldar þegar ...iðnbyltingin reið í garð ...trú á endalausar framfarir á sviði tækni. ...Í slíkum heimi verður allt ...að vera útskýranlegt ...eftir leiðum vísinda. ...Guð hættir að skipta máli".
Bls. 269: ,,Hvaða erindi eiga ...spurningar (um Guð) við samtímann ...geta menn sem vilja leysa öll vandmál eftir leiðum tækni og efnisvísinda tekið á þeim ...sem neita að viðurkenna að valdbeiting mannsins gagnvart heiminum ...hafi leyst úr læðingi öfl sem eru þeim ofvaxin, að mannkynið virðist stefna hraðbyri að eyðingu alls lífs á jörðinni".

,,Þessir andatrúarmenn", segir Halldór Laxness í Skáldatíma, bls. 229, ,,vilja ekki hlusta á neitt nema sannanlegar afturgaungur".

Karl Sigurbjörnsson, biskup, Í helgum steini, bls. 231: ,,Það er gjaldþrot efnishyggjunnar þegar öllum þörfum mannsins hefur verið fullnægt að því er virðist". Nefnir barn sem sem hefur allt sem hjartað girnist innan seilingar og nennir ekki að leika sér, en lætur sér leiðast.
Og á bls, 10: ,,Í allsnægtunum er það einatt óánægjan og ófullnægjan sem stendur upp úr".

Myndir

Einnig frá árinu 1878

  • Reykjanes fær vita og vörð
  • Utan bóndi hélt um haf,
  • Yfirvöldin ekki launa
  • Ebenezer naskur, sá,
← 1878Utan bóndi hélt um haf,1878 →Yfirvöldin ekki launa