Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1692
1692
1692

Utan til vígslu einir tveir

Hljóðbrot0:00

Lag Sigga litla, systir mín

UUtan til vígslu einir tveireigum Björn til varaólíkir í öllu þeirEinar kunni spara.

Glúmur Gylfason · 1692

Heimildir og samhengi

Már Jónsson: Árni Magnússon, ævisaga bls. 113:
,,Voru ytra til að krækja í biskupsembættið á Hólum prestarnir Einar Þorsteinsson, Múla, (Aðaldal) og Björn Þorleifsson, Odda. Björn bjó sig út með skinnhandrit frá miðri öldinni (sautjándu!) með miklu söguefni og gaf kóngi, sem bað Árna Magnússon að þýða fyrir sig. Hann færðist undan og sagði einungis eina söguna áhugaverða, Hrólfs kraka, og hana hefði hann þegar þýtt. Hinar væru ,,enten Romaner og pure Fabeler”.

Einar fékk Hóla, en Björn vonarbréf. Einar lést 1696.
Björn hét eftir móðurafa sínum, ríka, Saurbæ á Rauðasandi, Magnússonar prúða og er okkar Björn því 3. kynslóð ríkra og fjárgæslumaður samkvæmt því, og ekki bætti úr skák að húsbruni varð hjá honum á Hólum 1709. (Sjá 1710, einnig: 1621, 1628, 1677).

Saga frá Skagfirðingum I, 17: ,,Einar hafði hóf um allt en Björn Þorleifsson gjörði mikið um sig og hélt sér mjög fram”.
Biskupsfrú Björns var Þrúður Þorsteinsdóttir sm. Þorleifssonar sm. Hlíðarenda, Magnússonar prúða. Þorsteinn dó 1705, og þá -Saga frá Skagfirðingum I, 28: - ,,bættist þeim nú enn mikið fé, en það kom lítt að haldi því forsjá var lítil á Hólum en rausn mikil... mjög þótti umskipt frá því sem var á dögum Einars biskups”.

Í bók sinni, Oddi á Rangárvöllum, frá 1931, fjallar Vigfús Guðmundsson frá Keldum um biskup Einar og Oddafeðgana, Þorleif og Björn biskup, frá bls. 76 t.o.m. 80 án þess að hlutur Björns batni.

Faðir Einars biskups var sér Þorsteinn Tyrfingsson frá Hvammi í Norðurárdal, sá sem flæddi 1645 á Haffjarðareyjarsundi. Sjá 1645.

Myndir

← 1691Í Hítarnesi flaska finnst1693 →Þarf ei lengi í Lífsins bók