Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1691
1691
1691

Í Hítarnesi flaska finnst

Hljóðbrot0:00

Lag Góðu börnin gera það - Bj.Þ. 840

ÍÍ Hítarnesi flaska finnstfrekt réð Möller brjálalengi var og verður minnstvegna Kríumála.

Glúmur Gylfason · 1691

Heimildir og samhengi

Í Hítarnesfjöru finnst flöskuskeyti til drottningar, sendandi séra Jón Jónsson í Hítarnesi sem girntist eitt besta brauð Íslands þá, Hítardal, sem veitt var rektor Skálholtsskóla, Ólafi Jónssyni, og að honum látnum, ári síðar, bróðursyni hans, prf. Jóni Halldórssyni, fræðimanni, föður Finns biskups.
Refsivert athæfi var að snúa sér beint til hennar hátignar og dró langan slóða á eftir sér, sem kostaði prest og sýslumann embætti, ekki síst vegna ritvillunnar Chrian í nafni am. Christians Möller sem kom fyrir í bréfi Magnúsar Hrómundssonar sýslumanns í stefnubréfi hans til séra Jóns og stórmóðgaði það amtmann.
Tilvísanir: Árbók Espólíns, 8.-9. deild, 38; Öldin sautjánda.

Hítarnesfjörur:
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Hítarárós:

MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1690Boli konu kom í hel1692 →Utan til vígslu einir tveir