Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1693
1693
1693

Þarf ei lengi í Lífsins bók

Hljóðbrot0:00

Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915

ÞÞarf ei lengi í Lífsins bókað leita svars:Katrínu Drottinn til sín tókþann 12. mars.

Glúmur Gylfason · 1693

Heimildir og samhengi

Fitjaannáll II, 301: ,,...andaðist Katrín Erlendsdóttir á Stórólfshvoli Ásmundssonar, aldurs 81 árs, ein með helstu konum hér á landi upp á höfðingskap og skörugleika, ásamt útlátum við ríka og fátæka. Hún átti Vigfús Gíslason lögmanns Hákonarsonar”.
Vigfús d. 1647, þau foreldrar Bauka-Jóns. (1671, 1673, 1674, 1678, 1688, 1690).
Móðir Katrínar var Salvör Stefánsdóttir Oddaprests, Gíslasonar Skálholtsbiskups Jónssonar.
Móðurbróðir Katrínar var Sigurður skólameistari í Skálholti, sá sem drukknaði sofandi í Brúará1595, - sjá þar.
Langafi Katrínar í karllegg var lm. Þorleifur Pálsson (1485-1558) á Skarði, Skarðsströnd, sem var sonur Sólveigar Björnsdóttur ríka Þorleifsonar sem enskir drápu á Rifi 1467.

Myndir

Einnig frá árinu 1693

  • Lögskylt að ferja um Ölfusárós
  • Óknyttaslóðum og slörkurum snjóar
  • Yfirvöld nú mega mest
← 1692Utan til vígslu einir tveir1693 →Lögskylt að ferja um Ölfusárós