Dauður sigur úr býtum ber
Lag Ó, fögur er vor fósturjörð
Dauður sigur úr býtum berBauka-Jón fyrir réttiliggur við að Lúsíferleiki á og prettisvo á himni sem á jörðsig kann jafnan tryggjabiskup vildi að Hólahjörðhefði nóg að tyggja.
Heimildir og samhengi
Skv. Sögu frá Skagfirðingum I, 14, komst Bauka-Jón utan passalaus 1689 og mætti því ekki til réttarhalda í Viðvík. Ætlaði biskup Jón að leika sama leikinn aftur, þann frá 1673, en nú voru vinir hans frá þeim tíma ekki tiltækir lengur, síst Griffenfeld, er sat fangi í Noregi. Biskupi var því snúið við aftur með mútuféð í vasanum.
Við þinghald á Hólum, var hann fundinn sekur um launverslun með tóbak en hafði í utanförinni tryggt sér konungsleyfi til að áfrýja til hæstaréttar. Það nýtti sér Þórður, 18 ára sonur hans, nemi í Kh., og náði refsileysi fyrir föður sinn látinn, 1693, þ.e., arfur glataðist ekki. Hæstiréttur samþykkti sem sé ekki að látinn maður væri dæmdur og Þórður á að hafa bent á að tóbak fannst ekki skráð á vörulista kaupmanna.
Skv. Fitjaannál II, 304, var alþingisdómurinn, sekt 1.700 rd., að Jóni látnum, til þess felldur að koma í veg fyrir að kóngur kastaði eign sinni á allar eigur hans, og sýnir að lögrétta hefur þá ekki vitað um áfrýjunarleyfið.
Þess er að minnast, að á sýslumannsferli sínum slapp Jón tvívegis lítt skaddaður á sama árinu, 1671, sjá þar, þ.e., bæði frá fyrra tóbaksmálinu sem og galdraáburði þegar einungis annað þeirra hefði bundið enda á feril annarra.
Ætla verður að Jón Vigfússon, yngri, hafi búið yfir alveg sérstökum persónutöfrum og sem virðast hafa erfst, svo vel sem mörgum afkomendum hans hefur vegnað í lífinu..
Þar ber þess þó að minnast, að kona Bauka-Jóns var Guðríður (~1645-1707) Þórðardóttir prests og ættfræðings í Hítardal, er fyrstur Íslendinga lauk 1629 prófgráðunni attestatus, Jónssonar prests í Hítardal, Guðmundssonar, en móðir Guðríðar var Helga Árnadóttir lm. Oddssonar.
(1672, 1673, 1674, 1690).
Bauka-Jón stóð þessum varla langt að baki:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)