Árið 1690

t.d.

2 vísur frá árinu 1690
  1. 1690Lag: Ó, fögur er vor fósturjörð

    Dauður sigur úr býtum ber

    Bauka-Jón fyrir rétti
    liggur við að Lúsífer
    leiki á og pretti
    svo á himni sem á jörð
    sig kann jafnan tryggja
    biskup vildi að Hólahjörð
    hefði nóg að tyggja.

    Skv. Sögu frá Skagfirðingum I, 14, komst Bauka-Jón utan passalaus 1689 og mætti því ekki til réttarhalda í Viðvík. Ætlaði biskup Jón að leika sama leikinn aftur, þann frá 1673, en nú voru vinir hans frá þeim tíma ekki…

    Hlusta
    Hólar 1819 +3
  2. 1690Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Boli konu kom í hel

    en kostaði hann lífið
    brögðuðust Gísla býsna vel
    bæturnar fyrir vífið.

    ,,Kona Gísla á Hugljótsstöðum á Höfðaströnd gekk til fjár um kveld; kom í veg fyrir hana graðungur mannýgur, réðist á hana og gekk af henni dauðri. Gísli fann þann mann er átti graðunginn og heimti bætur, en sá svaraði:…

    Hlusta
    Myndband