Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1689
1689
1689

Oddur dirfðist djarft í leik

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumalandi

OOddur dirfðist djarft í leikdönskum veitti og blekkti.,,Góssið dýrt á eigin eykaldrei sá neitt þekkti!”Nefndur digri, feitur flautfyri'r það hefur liðiðloks er gift og gæfu þrautgengið fékk og riðið.

Glúmur Gylfason · 1689

Heimildir og samhengi

Landfógeti frá 1683, Kristófer Heidemann, fer enn norður, annað árið í röð, til vitnatöku vegna tóbaksmála Hólabiskups, Jóns Vigfússonar, sjá 1688, og hitti fyrir á Reynistað hest klh., Odds digra Jónssonar (1648-1712) klyfjaðan varningi er ekki var fenginn hjá kaupmönnum. Oddur vissi enga skýringu á áburði hests síns, en bauð fógeta ganga í bæinn og veitti vel. Málið kom til kasta alþingis og segja annálar að ,,þá hafi velgengni hans lokið og við það hafi hann megrast svo fékk gengið og hestar gátu hann borið”.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)

Vefurdailymotion.com (opnast í nýjum flipa)

Hér liggur beint við að ætla að klausturhaldarinn hafi verslað við erlenda skipshöfn. Oddur var bróðir Ragnheiðar (1615) tveggja biskupa ekkju (á 5000 kr. seðlinum) og fluttist til hennar að Gröf á Höfðaströnd 1698 og var með henni síðan. ,,Mittismál Odds var 11 spannir, sumir segja 13” (spönn 15.9 eða 18,5 cm.). Foreldrar þeirra digru systkina voru Vatnsfjarðarhjónin, Hólmfríður Sigurðardóttir yngra Oddssonar biskups, og Jón próf. og skáld í Vatnsfirði, Arasonar í Ögri, Magnússonar prúða. (1617, 1636).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Árið 1702 ,,er á alþingi mál Tómasar Konráðssonar að vestan er litlu einu hafði verslað við kaupmann á öðrum hafnarstað en sínum og var hann dæmdur til aleigumissis og Brimarhólmsþrælkunar”. Úr Saga frá Skagfirðingum I, bls. 26 og 22.
Ekki urðu allir jafnir fyrir lögunum í Evrópu fyrr en í kjölfar byltinganna í Frakklandi, með þýskum 1831. Börn fæddust inn í stéttir: aðal, borgara, bænda og almúga. Refsingar voru þyngri ef lægristéttarmaður braut á hærristéttarmanni.
,,...vera trúr í minni stétt" segir i sálmi Helga Hálfdánarsonar, sem fyrst kom í sálmabók 1886 og er þar enn árið 1997, nr. 355 og 2022 nr. 564. Helgi var fæddur 1826, þ.e. aðeins 33 árum eftir að Lúðvík 16 er hálshöggvinn í París. Hann er 35 ára þegar dönsk tilskipun kemur til Íslands þess efnis að konur skuli eiga með sig sjálfar. Sjá 1861.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Oddur var móðurafi Gísla Hólabiskups Magnússonar, d. 1779.

Til embættis Landfógeta, sem innheimta skyldi konungstekjur, var stofnað með einveldinu, ~1661, en hér á landi fyrst eftir dauða H. Bjelke 1683. Heidemann var eini konungsfulltrúinn 1683-88, þegar Christian Möller var skipaður amtmaður.
Heidemann var ferðagarpur, reið til Norðurlands 1684 og afsetti sm. Björn Magnússon á Munkaþverá, en 1688 (ásamt am. Möller) og aftur 1689 vegna Bauka-Jóns.

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1688Fullan aldarfjórðung tók1690 →Dauður sigur úr býtum ber