Góu- hefur þrællinn þótt
Hljóðbrot0:00
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Góu- hefur þrællinn þóttþungur í skauti verafáir gull í greip hans sóttgrand mátt þaðan bera.
Heimildir og samhengi
Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands: ,,Góuþrælsveðrið 9. mars.
Sjö skip sem reru frá Stafnesi fórust í aftakaveðri af útsuðri og með þeim 58 menn. Sama dag fórust 50 menn á fjórum skipum frá Vestmannaeyjum og 24 menn á fjórum öðrum skipum.
Í þessu veðri fórust því 132 menn á sjó og 6 urðu úti". (1573).
Vegna forsögunnar héldu margir formenn þá reglu að róa ekki á góuþræl. Sjá 1573.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ritar pistil um þetta mannskaðaveður á neðanskráðri slóð: