Fjöður yfir Dóri ei dró
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Fjöður yfir Dóri ei dróað dýrka kysi fjandanná báli skálkur skellihlóer skrattinn sótti andann.
Heimildir og samhengi
Síðast brennt. Nú fyrir e-k guðlast. Sjá 1625.
Halldór nokkur Finnbogason hafði snúið Faðirvorinu upp á djöfulinn. Að hann ekki iðraðist þýddi að sá vondi hirti sálina þótt brynni enda sagðist hann hafa í svefni gert samning nokkurn við djöfulinn og hótaði mönnum að ganga aftur eftir dauðann.
Desjamýrarannáll V, 281: ,,Var sá opinberi guðlastari, Halldór Finnbogason á lögþingið færður og líflaus á bál og bruna dæmdur. Var hann með hlátri og sköllum, nær brennast skyldi og endaði so sitt líf í sinni vonzku”.
Sverrir Kristjánsson fjallar um þetta má í Horfin tíð, bls. 243.
1756 var norn síðast hálshöggvin og brennd í Landshlut, (Þýskalandi?) og 1782 í Sviss, en þá mótmælti hálf evrópa. (Der Spigel - Geschichte - 2, 217, bls. 15).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Úlfar Þormóðsson var dæmdur fyrir guðlast 1983 og gaf 1984 út bók - varnarrit - Bréf til Þórðar frænda:
Vefurbokmenntaborgin.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)