Hrína eigi heit og tár
Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870
Hrína eigi heit og tárá heilagan Pétur, lykla,átján fanglaus fáum árfrá ,,Fiskbrestinum mikla”.
Heimildir og samhengi
Fiskbrestur syðra þetta ár og lítill afli allt til 1704 eftir aflaár frá 1638 samfleytt, sem lauk með ,,hlutavetrinum mikla 1684".
Vallaannáll, Íslenskir annálar I, bls. 405: ,,Hlutir alllitlir eystra fyrir Mýrdal, Söndum og Vestmannaeyjum; tók nú þar mjög af fiskgang og varð lítið um hluti lengi síðan".
Lúðvík Kristjánsson, Vestlenda, 162: ,,...um það (tímabilið 1685-1704) höfum við miklar heimildir...þá var mikill aflabrestur.. torvelt er að benda á aðra eins ördeiðu í annan tíma. Þjóðlífið einkenndist þessi ár af eindæma óblíðu veðurfari og bjargarþrotum. ...Ég þekki ekkert annað tveggja áratuga bil í sögu þjóðarinnar þar sem hún hefur orðið fyrir jafnmiklum sjóslysaáföllum samtímis aflabresti".
Frá bls. 166 fjallar Vestlenda ítarlega um hungursneyðina sem ríkti fram undir 1704 af völdum harðinda og aflaleysis og frá bls. 188 um sendiför lm. L. Gottrups1701 og afstöðu vlm. Páls Vídalín, próf. Árna Magnússonar og biskups Jóns Vídalín til hennar og þeirra bjargráða sem komu í veg fyrir ,,að landið legðist í eyði", svo vitnað sé orðrétt í Lögréttu. Sjá 1701 og 1702.
Tilvísun: Jón Þ. Þór: Ránargull, bls. 71 - 78.
,,Ástand Ísl. um 1700" telur á bls.89, að fólksfækkun vegna harðinda og aflaleysis á tveimur síðustu áratugum 17. aldar hafi verið um 10%.
1686 er árið sem konungleg tilskipun kom um að haldinn skyldi bænadagur, ,,Store Bededag" fjórða föstudag eftir páska. Hér fékk hann nafnið kóngsbænadagur.
Danska stjórnin afnam Store Bededag sem frídag 2023 og féll í kosningum í kjölfarið 2026 og því kennt um.