Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1680
1680
1680

Viljum ekki versla nú

Hljóðbrot0:00

Lag Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

VViljum ekki versla núvert er ei á meðandanskra veljum vera hjúmeð vaðið fyrir neðan.

Glúmur Gylfason · 1680

Heimildir og samhengi

Kaupmenn gjaldþrota.
Verslunarþátttöku neitað sem 1670, 1754 og 1759, sbr. líka 1576, þegar Guðbrandur biskup Þorláksson sóttist eftir verslunarleyfi – og fékk - en þá bað Lögrétta kóng forða því á þeirri forsendu að hann væri Íslendingur. Sbr. 1581.

Íslenskir auðmenn tóku ekki áhættu, en festu fé í jörðum, og kaupslöguðu á vetrum með vörur sem þeir höfðu keypt í hundraðskaupi, þ.e., fyrir 1/2 kýrverð hið minnsta.
Lögrétta bannaði kaupmönnum að dveljast á Ísland utan kauptíða.
Fjárfestingar og útgerð kaupmanna á Íslandi hefði keppt við bændur um vinnuafl.
Þetta viðgekkst þar til um 1765, en þá rísa íbúðahús kaupmanna á Ísafirði og Eyrarbakka.

Mynd á við 7. ljóð, 2. 2 úr Infernoit.wikipedia.org (opnast í nýjum flipa) Dante Alighieriit.wikipedia.org (opnast í nýjum flipa) um gráðuga og afkastamikla.

Myndir

Einnig frá árinu 1680

  • Komin brú á Brúará,
  • Nýja öxi nota þeir
← 1680Komin brú á Brúará,1680 →Nýja öxi nota þeir