Komin brú á Brúará,
Lag Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838
Komin brú á Brúará,bændur flutu grjótiðlögðu timburgólf á gjáog gengu yfir fljótið.
Heimildir og samhengi
Úr Biskupasögum prf. Jóns Halldórssonar, d. 1736:
,,1680 tóku sig saman bændur í Biskupstungum: Jón Jónsson smiður í Miklaholti og aðrir fyrirmenn sveitarinnar, veltu stórum björgum ofan í árþreingslin til að koma upp aptur brúnni á ána og hlaða hana upp; en þá vatnavextir verða miklir á vetrum brjóta þau opt af þetta forverk og þarf aptur við umbótar hvað eptir annað".
Skólameistari, Kristinn Kristmundsson, Árnesingur Rit X, bls. 95: ,,Um 1800 var sett trébrú yfir ána fyrir ofan fossinn, en hún hefur verið mjög veikbyggð."
Brú – brúargólf – var lagt á sama stað fyrir komu Friðriks VIII. 1907. Næsta brú, þvert á veginn við Spóastaði, smíðuð vegna komu Kristjáns X. 1921, var notuð til 1967, þegar einbreið brú kom á núverandi brúarstæði sem gerð var tvíbreið 2007.
Áður var ferja þar nokkru vestar á Brúará, sjá vísu 1595.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)