Árið 1680

t.d.

3 vísur frá árinu 1680
  1. 1680Lag: Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

    Komin brú á Brúará,

    bændur flutu grjótið
    lögðu timburgólf á gjá
    og gengu yfir fljótið.

    Úr Biskupasögum prf. Jóns Halldórssonar, d. 1736: ,,1680 tóku sig saman bændur í Biskupstungum: Jón Jónsson smiður í Miklaholti og aðrir fyrirmenn sveitarinnar, veltu stórum björgum ofan í árþreingslin til að koma upp…

    Hlusta
    Brúrarfoss, teikning frá 1850BrúarfossBrúarfoss
  2. 1680Lag: Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838

    Viljum ekki versla nú

    vert er ei á meðan
    danskra veljum vera hjú
    með vaðið fyrir neðan.

    Kaupmenn gjaldþrota. Verslunarþátttöku neitað sem 1670, 1754 og 1759, sbr. líka 1576, þegar Guðbrandur biskup Þorláksson sóttist eftir verslunarleyfi – og fékk - en þá bað Lögrétta kóng forða því á þeirri forsendu að…

    Hlusta
    Græðgi og afköst
  3. 1680Lag: Litlu andarungarnir

    Nýja öxi nota þeir

    nú að Öxará
    ;.; fyrstur kemur, fyrstur deyr
    fleiri vilja' en ná;.;

    Öldin sautjánda: ,,Einar Þorsteinsson (d.~1691), sýslumaður á Felli í Mýrdal, gaf Öxarárþingi í sumar nýja öxi. Kom hún í góðar þarfir sem vænta mátti og var fyrstur manna höggvinn með henni Sæmundur Þorláksson, maður…

    Hlusta
    Lögberg - ÞingvöllurHöggstokkur