Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1751
1751
1751

Til Innréttinga aflað viðu,

Hljóðbrot0:00

Lag 10 litlir negrastrákar

TTil Innréttinga aflað viðu,allt að Skúla ráðien hinum megin við hornið biðuharðindi og kláði.

Kóngur lét í land innfæralínvefnað til klæðaog töjmakara til þess færatvinna í nál að þræða.

Glúmur Gylfason · 1751

Heimildir og samhengi

Stjórn Innréttinganna kosin um þingtímann. Hlutafé 1550 rd. Stjórnin beðin um 6.000 rd. fjárveitingu, en kóngur ákvað 10.000 rd. árlega í 6 ár og sjöunda árið sömu fjárhæð, en þá kallað lán. Full starfsemi hófst að ári.
Samtímis byrjuðu harðindi sem stóðu í 7 ár, þ.e., til 1757. Úr hungri og kulda féllu um 1000 manns árlega og þar næst tók við fjársýki frá um 1761 til 1779 - sjá 1762.
Fór hér ekki saman góðæri í stjórnmálum og veðurfari auk þess sem verslunarfyrirkomulagið hjálpaði ekki Innréttingunum.

Árbók Espólíns, 9. hluti, 27: ,,Friðrik kóngur hinn V. tók sér það fyrir að rétta við Ísland og lagði þar á mikla stund; en óhægðir og harðindi þau er þá fóru í hönd ollu því að miður varð ágengt en hann vildi, og enn óvilji landsmanna við allar nýjar tilskipanir".

Vefursouth.is (opnast í nýjum flipa)

Ísl. annálar VI, Djáknaannáll, bls. 79: ,,Kóngur lét færa hér inn í landið klæðavefnað og fleiri handverk handa hvörjum hús voru byggð í Reykjavík. Þýskur töjmakari settist að Leirá með sinn vefstól”.

Hrefna Róbertsdóttir, Landsins forbetran, 77: ,,Vefsmiðja var reist á Leirá 1751 og var Hið íslenska hlutafélag stofnað í tengslum við hana það ár. Vefsmiðjan átti að þjóna öllu landinu og verða miðstöð nýrrar verkþekkingar í ullariðnaði".
Á bls. 88 segir Hrefna að ,,færa megi rök fyrir því að hlutafélagið hafi verið stofnað í tengslum við tauverksmiðjuna á Leirá en ekki í sambandi við þær ,,allítarlegu uppástungur og áætlanir" sem Skúli Magnússon hefur að líkindum lagt fram fyri menn á Þingvöllum 1751 eins og Jón J. Aðils hefur sagt frá".
Á Leirá bjó þá lm. Magnús Gíslason, verðandi amtmaður.

Hrefna Róbertsdóttir, Landsins forbetran, 136:
,,Vorið 1752 kom Skúli siglandi heim með skúturnar tvær, efnivið í byggingar og margt starfsfólk".

Dr. Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, hefur rannsakað ítarlega flest eða allt sem við kemur Innréttingunum og birt í bókinni ,,Landsins forbetran - Innréttingarnar og verkþekking í ullarvefsmiðjum átjándu aldar", sem út kom árið 2001. Sést þar ýmislegt í öðru ljósi en áður.

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1751

  • Pater noster Páll ei las
  • Laga- varðar lítt um staf
← 1750Bach í ár þótt yrði nár1751 →Pater noster Páll ei las