Pater noster Páll ei las
Hljóðbrot0:00
Lesið
Pater noster Páll ei lasprestur utan gáttaHögna þótti hafa fashér þótt skenkti sér í glashann var einn af átta.
Heimildir og samhengi
Sr. Páll (1719-1805) var dæmdur frá embætti 1751 fyrir að fara ekki með ,,Faðir vor” yfir víninu, en fékk Torfastaði ári síðar.
Hann var einn 8 prestsvígðra sona Högna Sigurðssonar, prests á Breiðabólstað, Fljhl. og Guðríðar konu hans Pálsdóttur. (1748, 1760, 1762).
Ekki er vitað hvort Bakkus var með í spilinu, sem vel getur hafa verið.
Á þessum heittrúartíma áttu prestar margt í hættu því hart var tekið á siðferðisbrestum og drykkjuskap en afleiðingin, afglöp við embætti, tilfærð sem ástæða fyrir brottvikningu.