Hörmangarafautum fátt
Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869
Hörmangarafautum fáttfyrir- verður gefiðtil þeirra hugsa bændur bágtog bjóða ekki í nefið.
Heimildir og samhengi
16. apríl 1742 bauð Íslenska verslunarfélagið kóngi helmingi hærra en áður í Íslandsverslunina, 16.000 rd. Félagið hafði verslað í 10 ár og var með góða reynslu og hafði komið sér vel , við landsmenn - ef ekki best - allra höndlara.
Reynslulaust félag, verr og/eða illa stæðra kaupmanna, Hörmangarar, buðu 16.100 rd. og hlutu Íslandsverslunina 1743 til 1771.
,,H.C. Bech, sem var í þjónustu Íslandsverslunar Hörmangara, komst þannig að orði um skiptin 1742: ,,Þá stofnuðu fáfróðir menn nýtt verslunarfélag og stjórn þess gjörólík stjórn félagsins sem á undan var, og árangurinn varð eftir því".
Nefnd var skipuð til að rannsaka verslunarhætti Hörmangara og skilaði áliti 1757 sem leiddi til þess að þeir voru sviptir leyfinu 1758".
Heimild: Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 130 og 133.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Öfug formerki:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)