Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1743
1743
1743

Enga spýtu í má ná

Hljóðbrot0:00

Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

EEnga spýtu í má násvo ekki minnkar slaðurhöll er reisir Ökrum áungur sýslumaður.

Lagavörður léttar andarlöngum þykir heppinnmeðan skip við Skaga strandarSkúli' ei fer á hreppinn.

Glúmur Gylfason · 1743

Heimildir og samhengi

Víðast timburskortur nema á Ströndum og Melrakkasléttu. Kaupmenn fluttu lítið timbur af því að það var rúmfrekt og sótt til Noregs, en kaupförin sigldu frá Danmörk eða Norður-Þýskalandi. Því var stundum efnt til sérstakra timburskipa beint frá Noregi. M.a. til þessa skorts má rekja talið um ,,góð strönd”.
Þegar enn var slakað á verslunarhömlum, 1816, greiddu timburskip frá Noregi 2/5 af því lestargjaldi sem annars mátti greiða.
Sögur af Skagfirðingum taka undir orðróm um óreglulega meðferð Skúla á skútuströndunum 1740, sem honum áttu að hafa orðið fengsöm.

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Tvær hollenskar duggur strönduðu við botn Skagafjarðar 1740 og 1741. Stjórnin verðlaunaði Skúla með 200 rd. fyrir framgönguna við ströndin, en Skagfirðingar litu öðruvísi á þau mál skv. Sögu frá Skagfirðingum l, bls. 68n.
Í kjölfarið kom Skúli Magnússon sér upp timbruðu húsi á Stóru-Ökrum sem virt var á 500 rd 1743.
Gerist á líkum tíma og sm. Hnappadals gerir Alþingi grein fyrir einum eikarplanka úr útlensku skipi: ,,3 1/2 alin x 3quart, rifinn og sundurboraður, uppdrifinn á kóngsjarðarreka í Miklaholtshreppi". (Alþingisbók 1736, bls. 303).

Ásgeir Jónsson segir, í ritgerð um Skúla, Dani hafa dáð Skúla meir en Íslendingar í samtíð hans. (1737).

Sjá SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)

Guðmundur J. Einarsson, Kalt er við kórbak, bls. 156: ,,Við það (að koma timbri fyrir í skipi) mega engir vinna nema fagmenn enda þarf sérstakt lag til að koma því örugglega fyrir, því að ef farmurinn nýst til, hversu lítið sem það er, getur kviknað í timbrinu. ...Timburfarmur á þilfari er einhver leiðinlegasti flutningur sem hægt er að hafa og hreppi maður storma er hann blátt áfram hættulegur. Skip með slíkan farm sigla líka mjög illa nema á undanhaldi. ...Þó er hálfu verra við að eiga á seglskipum".

Myndir

Einnig frá árinu 1743

  • Hörmangarafautum fátt
← 1743Hörmangarafautum fátt1744 →Harboe farinn af Hólastól