Thorkelíusar bann og boð
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Lag Þú komst í hlaðið á hvítum hesti
Thorkelíusar bann og boðBrynjólfur réð klagaúr því máli ofin voðaf spratt Harboes saga. .
Í Skálholtspiltum þá gólu garnirei gat Jón Þorkelsson setið hjáþær álitlegustu væru varnirað vitja kóngs og í borðið slá.
Er gistu að Hólum þeir Harboe báðirþá hræddist tóran úr prestunumer sumir alls- varla voru gáðirog væntu hremminga' af gestunum,
sem áttu trassaskapinn skakka- því Skrattinn eflist við spil og dans -með fylgi Steina á Staðarbakkaer stóðst öll vélabrögð Andskotans.
Þar stendur Þorsteinn all drunga-, drunga-já, drungalega að austrinu,skráir í ,,Fælu” að ,,bunga-bunga”Bjarni þar fremji í klaustrinu.
Heimildir og samhengi
Jón Thorchilius (1697-1759) Skálholtsrektor 1728-37, var snortinn af píetismanum og hafði bannað skólapiltum að starfa fyrir veraldlega embættismenn á sumrin.
Brynjólfur (1708-1771), 1734 settur aðstoðarsýslumaður í Árnessýslu fyrir föður sinn, Sigurð, Sigurðssonar lögmanns Björnssonar, stefndi Jóni þar fyrir í miðri kennslustund og fékk banninu hnekkt með dómi.
Tilgangur Jóns Thorchilius var að forða piltunum frá þeim solli sem fylgdi sýslumönnum og liði þeirra einkum á ferðum. Sagði hann svo upp rektorsstöðunni og fór til Kaupmannahafnar og dró vitnisburður hans um kristnihaldið hér til margfrægrar sendifarar þeirra Ludvigs Harboe til eftirlits með prestum og helgihaldi á Íslandi 1741-1745.
Ísl. æviskrár segja um Brynjólf: ,,frábrugðinn drykkjuskap og solli". (Annálar). Sjá enn fremur 1757.
En Guðmundur Daníelsson segir í Dómsdagur, bls. 45, frá ,,Ingibjörgu dóttur Brynjólfs sýslumanns í Hjálmholti, sem eitt sinn, um 1760, hafði dæmt mann úr Biskupstungum til dauða fyrir sifjaspell og hengt hann á gálga heima hjá sér".