Siglfirðinga þjáði þröng,
Lag Þrútið var loft og þungur sjór
Lag Hani, krummi, hundur, svín
Siglfirðinga þjáði þröng,þótti sækja aðÞorleifur Skafta í Skarði söngskratta niður kvað.
Dugði skammt og dægrin löngaf draugum gerði morauns Stráka- loks í stað þess göngstjórn um síð lét bora.
Nóg mun eigi aðgert samtennþá þarna slæðistsvo almenningur almennt jafntAlmenninga hræðist.
Hrellir lýði þessi þröngþví vér erum feginað opnast hafa önnur göngÓlafsfjarðarmegin.
Heimildir og samhengi
Saga frá Skagfirðingum bls, 59: ,,Um Siglufjarðarskarð var stígur einn á veginum er mönnum varð að ófarnan mikil; hafði það verið um 100 vetur að menn höfðu séð þar sýn nokkra, líka skýstrokki og hafði stundum steypst á ferðamenn og eins á degi sem nóttu, þó ei meir en einn í senn, þó fleiri væru saman og varð það þess manns bani. En þá hér var komið voru 5 vetur síðan að það hafði gjörst tíðara en fyrri. Bauð þá Steinn biskup Þorleifi prófasti Skaptasyni í Múla, er haldinn var einna mestur klerkur og andríkastur norðanlands í þann tíma, að flytja þar opinbera guðsþjónustugjörð og bænir. Var þar þá reist grjótaltari á stígnum um sumarið og framin guðsþjónusta og bænagjörð með fjölmenni, og er sagt að síðan hafi ei orðið mein að því”.
Sama heimild, bls. 46: ,,Trúðu fávísir að Þorleifur Skaptason skildi hrafnsrödd". Þeir vissu líka að jafntefli varð í viðureign Þorleifs og Galdra-Lofts, er hann ætlaði að drekkja Þorleifi í Hjaltadalsá, en hestur Þorleifs varð staður úti í miðri á og óð Þorleifur yfir með hempuna. Þá var kveðið:
Furðar mig á fréttum þeim
fótgangandi var hann.
Þegar hann kom til Hóla heim,
hempuna sína bar hann.
Þorleifur var sonur Skapta Jósepssonar, þess sem í Skálholtsskóla keppti við Jón Sigurðsson, lögmanns, um Ragnheiði Torfadóttur, sjá 1670, og 1661. Dóttursonur Þorleifs var Kolbeinn Jónsson, faðir tveggja Kambránsmanna (1827) og Þorleifs ríka á Háeyri (1852), en hann langafi séra Kolbeins Þorleifssonar (1936-2007), fræðimanns .
Síðari kona Þorleifs Skaptasonar, Oddný Jónsdóttir, var ekkja sr. Magnúsar Einarssonar á Húsavík og kenndi Þorleifur sonum hennar til stúdentsprófs, þ.á.m. Skúla, er varð landfógeti. (Íslenskar æviskrár).
Þjóðsögur urðu til um séra Þorleif Skaftason og eru sumar hjá Ævari Kvaran í Íslensk örlög, bls. 48.
Úr þjóðsögum Jóns Árnasonar tók Óskar Halldórsson saman kverið Galdrasögur. Þar, á bls. 191 ,eru sögur af Þorleifi og þ. á m. ein ítarlegri um Siglufjarðarskarðið.
Á bls. er 193 í sömu bók segir frá Galdra-Lofti.
Bílvegur kom um Siglufjarðarskarð 1946 og Strákagöng opnuð 1967. Almenningar nefnist svæðið þar sem sífellt jarðsig gerir veginn úr Fljótum til Stráka varasaman.
HeimildAlþingi (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Siglufjarðarskarð:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Mynds2.wklcdn.com (opnast í nýjum flipa)
Mynds2.wklcdn.com (opnast í nýjum flipa)
Mynds2.wklcdn.com (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefuradventures.com (opnast í nýjum flipa)
VefurGuide to Iceland (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)