Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1736
1736
1736

Allt nú þykir ósiður

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

AAllt nú þykir ósiðursem áður prýddi vitrapíetisminn plagsiðurpredikaður ytralokað Kóngsins Teatertigna skal hið bitralúskra ber á Lúsíferleyfist ekkert glitra.

Glúmur Gylfason · 1736

Heimildir og samhengi

Píetisminn - hreintrúarstefna - fór sigurför um evrópu. Honum fylgdi Kristján VI., kóngur 1730-46.
Ekki var veitt áfengi við hyllingu hans á Þingvöllum 1731, og 1736 var bannaði allt silki - nema svart - og glitofin klæði, skart og gyllingar og leikhúsum lokað, m.a. því Konunglega í Kaupmannahöfn - allt að þýskri fyrirmynd.
Þó var 1736 hætt að svipta embættum og / eða sekta hjón, og láta standa opinberar skriftir ef frumburður fæddist áður en talið yrði upp að 9.
Upplesnar á alþingi kongl. majest. allranáðugustu forordningar:
1. Um yfirdrifinn klæðnað: báðum kynjum bannað að bera gull eða silfur á klæðum eða hverju öðru nafni sem nefnist, sömuleiðis silki brocherað eða með lituðum blómaskreytingum nema því kínverska sem flutt hefur verið þaðan með vorum skipum. Þó mega þeir sem nú þegar eiga þessa hluti bera þá næstu tvö ár og undantekningarlaust á afmælisdögum konungsfjölskyldunnar og hátíðum á hennar vegum.

2. Kaupmönnum bannað að flytja fyrrnefndar vörur inn frá útlöndum.

3. Undantekningarlaust öllum alvarlega bannað að nota gull- eða silfur- , útsaumuð efni, snúin bönd um/í hatta, mublur og (vegg)fóður (Betræk), vagna, aktygi, dúka, Chaberaquer (Ridedækkener af rød Klæde med guule Snorer) eða önnur klæði og skraut hverju nafni sem nefnist. Þó leyfist þeim sem þetta eiga nú þegar að nýta það næstu tvö ár, en Dækkener, (dúka?) og Chaberaquer í 4 ár. Þeir sem nú eiga gylltar eða silfraðar mublur mega halda þeim ef - í Kbh. búandi innan 14 daga, aðrir 3ja mánaða - senda Commerce-Collegium lýsingu á þeim mublum.

4. Allir kniplingar sem ei eru gjörðir í voru ríki eru bannaðir, en þeir sem þá eiga nú þegar skal leyft að nota þá.

5. Án tillits til álits, stands og tilefnis er öllum þegnum vorum bannað að bera demanta, perlur, skart og eðalsteina, ekta og óekta, bæði heima og úti.

6. ...hjá þeim sem bannið brjóta verða viðkomandi hlutir gerðir upptækir og taki refsingu: 1. og 2. klassi: 300 rd., aðrir klassar 200 rd. Þeir sem ekki falla undir neinn klassa: 50 rd.

Sektin fer hálf til þess sem kærði, en hálf í vorn kassa. Verði greiðslufall afplánist 14 dagar í fangelsi við vatn og brauð.
(Alþingisbók, bls. 353).

Under Vor Kongelig Haand og Signet.

Christian R.

Í tilskipun 1737 koma tilslakanir sem gilda presta, en nokkrar ítrekanir við ofanritaða forordningu og talin upp um 30 starfsheiti fólks sem ekki megi klæðast silki. Viðurlög eru að missi hálf laun sín. (Alþingisbók, 353).

1281 - í tíð Eiríks prestahatara Magnússonar, þá 13 ára, voru settar reglur sem takmörkuðu rétt fátækra til að klæðast skrautlega.
Á valdatíma Olivers Cromwell í Englandi á árunum 1653 til 1658 voru tónlist og leiklist bannaðar með öllu.

Innocentius XII, páfi 1691 til 1700, lét loka leik- og óperuhúsum Rómaborgar á þeim árum.
(Heimild: Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, bls. 199 og 205.)

Skv. frásögnum erlendra ferðamanna frá 19. öld, þá höfum við lengi sýnt konungshollustu í þessu efni að viðbættri húsagatilskipuninni 1746. Þeir töluðu um steinrunnin andlit Íslendinga er ekki fengjust til að brosa. Hér var sjaldnast um fangelsi að ræða, en gapastokkur og hýðing beið brotlegra svo vissara var að spara brosið og tala varlega í návist ókunnugra. (1698, 1699, 1802).
Tilskipunin numin úr lögum 1865/6.

Dæmi úr ævisögu Einars Benediktssonar II, 199-200, eftir Guðjón Friðriksson, haft eftir enskum rithöfundi, Stackpool árið 1912: ,,Kvenfólk hlær sjaldan og svarar manni sjaldan með brosi ... það liggur við að manni gremjist í svipinn þessi kuldi, einkum hjá búðarstúlkum. Einhverjar þungar og daprar hugsanir virðast hvíla yfir þessum konum”. MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1736

  • Thorkelíusar bann og boð
← 1736Thorkelíusar bann og boð1737 →Sína skoðun láta í ljós