Prestar mátu prófast slys
Lag Kálfar tveir í kúamynd
Prestar mátu prófast slyspukra ei né leynaað ,,óumventan innvortis”óskuðu sér Steina.
Heimildir og samhengi
Séra Þorsteinn Pétursson (1710-1785) útskrifaðist þetta ár stúdent úr Skálholtsskóla ,,óumventur innvortis” eins og hann orðar það í ævisögu sinni og gagnrýnir að viðgengist.
Þetta er sama árið og píetistinn Jón Thorchilius kærir skólahaldið í Skálholti til yfirvalda í Danmörk, sjá annars staðar við 1734.
Sjálfsævisaga Þorsteins kom út 1947 í umsjón Haraldar Sigurðssonar, bókavarðar.
Þorsteinn vígðist þegar aðstoðarprestur til sr. Orms Bjarnasonar, prófasts á Mel í Miðfirði og aðstoðarprófastur hans við komu L. Harboes, 1741, en Ormur þá gamall orðinn.
Frá Harboe fékk Þorsteinn sér veittan Staðarbakka og varð prófastur í 30 ár.
Þótti þá prestum í Húnaþingi fram hjá sér gengið er bóndasonur af almúgaættum var gerður að prófasti. Er þá einkum átt við séra Halldór Hallsson (1690-1770) á Breiðabólstað í Vesturhópi, sem var prófastssonur og 4. maður frá Oddi biskupi Einarssyni, en drykkfelldur, harðskyttur og deilugjarn. (P.E.Ól.).
En Þorsteinn var heittrúarmaður (píetisti) eins og Harboe og fylgdarmaður hans, Jón Thorchilius, svo sem þá tíðkaðist í Danmörk.
Þorsteinn tók prófastsembættið alvarlega og samdi umvandandi hirðisbréf til prestanna með postullegu orðalagi þeirra Páls og Péturs. Prestar undu lítt og kvörtuðu til Halldórs biskups Brynjólfssonar.
Annað umvöndunarefni sem eftir Þorstein liggur er Leikafæla, rit gegn þrettándagleði sem Bjarni Halldórsson hélt á Þingeyrum árin 1745-1747, sjá þar.
Heimildir: Ísl. æviskrár, Ævisaga Þorsteins Péturssonar og formáli Halldórs Sigurðssonar.