Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1733
1733
1733

Vel komu Oddi Sigríðarsjóðir

Hljóðbrot0:00

Lag 1 lítill, tveir litlir, þrír litlir fingur

VVel komu Oddi Sigríðarsjóðirsyni' ei gleymir um eilífð móðirþótt Danir væru um fortíð hans fróðirfyrndar þær létu slóðir.

Glúmur Gylfason · 1733

Heimildir og samhengi

+ Sigríður Hákonardóttir, f. 1648, mdm. sr. Sigurðar Sigurðssonar, Oddssonar (bisk.) á Staðastað, sem á þessu sínu dánarári hafði hlotið stóra arfhluti úr dánarbúi Kristínar Guðbrandsdóttur, pr. Vatnsfirði Jónssonar Arasonar í Ögri, en Elín, móðir Kristínar, var systir Sigríðar og þær dætur sm. Hákonar Gíslasonar og matronu Helgu Magnúsdóttur í Bræðratungu. Sem ekkja, frá 1690, bjó Sigríður lengst á Rauðamel á Snæfellsnesi.
Oddur var einkaerfingi Sigríðar móður sinnar, sem áður hafði erft systurdóttur sína. Hann fær arfinn í hendur 1734 og sest að á Leirá.
Í annál rituðum af Eggert Ólafssyni (1726-1768) telst arfur Odds 5 1/2 hdr. í föstu og stórmikið lausafé. Oddur hafði fengið uppreist æru frá kóngi 1729. Sjá 1713, 1716, 1721, 1724, 1726.

Eftir Jóni Espólín hefur Gils Guðmundsson í Frá ystu nesjum VI, 87: ,,Þegar Vigfús Jónsson (bauka) hélt frá Leirá til Vatnsfjarðar 1709 að sækja Kristínu Guðbrandsdóttur, brúði sína, var fylgdarmaður hans Jón Eyjólfsson, b. Ási, Melasveit. Hann spurðist fyrir um og rannsakaði rústir Vatnsfjarðarkirkju þeirrar miklu sem Björn, síðar hirðstjóri Þorleifsson, drepinn 1467, lét flytja heila utanlands frá og þýskan mann, reisa 1452 ásamt Sigvalda langalíf Gunnarssyni.
Þeir höfðu markað hæð sína á ,,forkirkjustaf": Þjóðverjinn 4 álnir, Sigvaldi nær 5 álnir".
Alin skv. Jónsbók þá: 47,7 cm.: 5 álnir ~230,5 cm.
Sigvaldi var föðurafi Gissurar Einarssonar, fyrsta lútherska biskupsins, sem „...var manna hæstur, nær því sem faðir hans“, segir Espólín. (Íslendingabók).
Jóhann Svarfdælingur Pétursson var 2,34 m. - Wikiwand.
Golíat 2,05 m segja fræðimenn og hafi verið 40 cm hærri en meðalkarlmaður um árið 1000 f.Kr. (Sr. Skúli Ólafsson 12.03. 2023).

Myndir

Einnig frá árinu 1733

  • Byr und vængi flmtan fær
← 1733Byr und vængi flmtan fær1734 →Prestar mátu prófast slys