Enginn var edrú á Þingi
Lag J. McGranahan 1883, Sálmabók 529
Enginn var edrú á ÞingiOddur og Beyer við skálslöguðu og hrötuðu í hringiog heldur var stirt um málnokkuð í stúf þó að stingistyðja sig máttu við Pálþeim helvítis Húnvetningigegn höfða vildu þeir mál.
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Háttvirt Alþingi Íslendinga:
Jón Aðils, Saga Odds Sigurðssonar, bls. 16: ,,...þinghaldið fór að jafnaði meira og minna í handaskolum. Menn komu of seint til þingsins, sátu í veislum hver hjá öðrum til skiptis fram á nætur og komust ekki úr rúmunum fyrr en einhvern tíma seinni hluta dags.
Stundum voru dómararnir orðnir svo drukknir þegar þeir komu í lögréttu, að þeir voru með öllu ófærir til að gegna dómarastörfum”.
Á bls. 41-3 um þingið 1708: ,,...tók að svífa til muna á þá fulltrúana (Odd Sig. og Paul Beyer) og sló að lokum í illdeilur með þeim ...og vildu berjast, en Páll og Jón (Eyjólfsson varalögm.) létu þá ekki ná saman... varð af háreysti mikil svo þingheimur flykktist að búðinni alla vegu til að horfa á leikinn... Oddur var æstur mjög og krafðist vitnisburðar um orð Beyers, en Páll Vídalín kvað það ráð að sofa af um nóttina og vita hvað þeir myndi að morgni. Nú fór Jón... vildu þeir Oddur og Beyer þá óðar hlaupa saman en Páll fékk á endanum hrakið Odd út úr tjaldinu og í búð hans, en kona Beyers vafðist fyrir honum á meðan. Kom Páll aftur í búðina eftir litla stund og hjálpaði henni til að koma Beyer í rekkju, en þegar hann kom út þaðan var Oddur í óða önn að rífa upp tjöld sín til að flytja úr nágrenni við Beyer. Fékk Páll hann ofan af því”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Skrunið niður tvívegis, tvær tyrkneskar uppákomur í boði:
Vefurberliner-zeitung.de (opnast í nýjum flipa)
Úr bréfi stam. Raben til alþingis 1720: ,,...nokkrir... einkum menn af hærri stéttunum, koma þangað (alþing) til að gegna málum drukknir og vitlausir eins og óarga dýr”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sýnist koma vel heim við lýsingu Jóhanns Gottrup1725og ekki síður við lýsingu hm. Herluf Daa 90 árum fyrr, sjá bókina ,,Fólk og saga" eftir Benedikt frá Hofteigi og þriðja vitni hins sama er Hannes Pálsson, sendimaður konungs 1426:
,,Þeir sem álitnir eru höfðingjar eru auðginntir með bænum, drykk og mútum en samt sem áður trúir hin einfalda og fátæka alþýða þeim og lætur blekkjast. Þeir stuðla hvorki að nytsemi lands og lýðs né skeyta nokkru þótt aðrir steypist í glötun og tortímingu á meðan þeir sjálfir geta ginið yfir nýjum og áður óþekktum drykkjuskap og svalli, en við það gleðjast þeir mjög".
Um hálfri öld síðar vitnar skýrsla Harboes um að þá gangi veraldleg yfirvöld drukkin að störfum sínum. (1741).