Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1658
1658
1658

Brúðkaupsveisla Gísla og Gróu

Hljóðbrot0:00

Lag Á kaupmanninn, rétt við búðarborðið

BBrúðkaupsveisla Gísla og Gróugat ei aðra slíkaspinna áttu og spila úr nóguog spilaði Þórður líka.

Glúmur Gylfason · 1658

Heimildir og samhengi

Vegleg brúðkaupsveisla Gróu Þorleifsdóttur og Gísla biskups Þorlákssonar var haldin á Hólum sd. 22. til 25. ágúst.
Þórður bróðir hans lék á symfón og real (regal), lítið hljómborð tengt einni eða tveimur röðum af tungupípum (stuttar pípur með blaði) og vindbelg sem annar þenur gjarnan, en að öðrum kosti þenur organistinn belginn með vinstri hönd og leikur þá aðeins með þeirri hægri.

Vallholtsannáll, I, 352: ,,Hafði Þórður tvö hljóðfæri útlenzk, Real og Symphon og lék á þau í kirkju og stofu, þá brúðargangur var genginn. Margt var þar annað góðra manna, og eigi færra til borðs á sunnudaginn í stofu, nýjahúsi, biskupsbaðstofu, borðhúsi til saman en 230".

Annálar herma að 1328 hafi Arngrímur Brandsson Skógs í Skógum lært orgelsmíði / leik í Noregi. Honum veittur Oddi ~1330 og þangað hafi hann flutt með sér lítið orgel, (AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)) og síðar fór hann ábóti að Þingeyraklaustri.

Þórður varð Skálholtsbiskup 1674 og hafði þar hjá sér re(g)alinn og mun Hjalti Þorsteinsson, síðar prestur í Vatnsfirði, hafa leikið á hann auk biskups.

Regal er ein af röddum núverandi Skálholtsorgels.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1658

  • Yfir Sundið Svíar vaða
← 1657Ætterni sín mikils mátti1658 →Yfir Sundið Svíar vaða