Yfir Sundið Svíar vaða

Lag Rósin

Yfir Sundið Svíar vaðasitja lengi um Kaupinhafnsig innbyggjarinn ei kann baðaekki sýnist leikur jafnfáar kann sér bjargir bringabrúnt kom vatn úr krönunumþar til herinn Hollendingahjálpa náði Dönunum.

Glúmur Gylfason · 1658

Heimildir og samhengi

Íslandsverslun í uppnámi á meðan Svíar sátu um Kaupmannahöfn 11. ágúst 1658 til 27. maí 1660 og réðu siglingum um Eyrarsund eftir að þeir náðu Krónborg 1658

Vegna stríðsins fékk kóngur niðurlenskan kaupmann, Jonas Trellund, til að sigla með vörur til Íslands enda Eyrarsund á ís, en hann þótti velja sér hafnir og ei sinna þeim sem minna gáfu af sér. 1659 sigldi hann öllum 12 skipunum til suður og vesturlands. Trellund tók fyrir þá venju að selja þeim á betri kjörum sem meira keyptu, svokallað hundraðskaup. Fjarveru kaupmanna á öðrum árstímum höfðu þeir síðan nýtt til að endurselja á hærra verði.
Vitað er um tvo eða þrjá Íslendinga sem börðust með íbúum Kaupmannahafnar og fékk einn rektorsstöðu en annar sýslu að launum.
Einn þeirra óskunda sem Svíar gerðu Kaupmannahafnarbúum var að rjúfa vatnsleiðslur sem lágu inn í borgina.
Hollendingar voru stórveldi á 17. öld og þeim þóknaðist ekki að sama ríki réði báðum megin Eyrarsunds og komu þess vegna Dönum til hjálpar að nokkru leyti.
Þarna misstu Danir Skán endanlega, en tæpt stóð að Svíar næðu völdum í danska ríkinu.
Önnu afleiðing stríðsins var sú að kóngur, Friðrik III., náði með hjálp borgarastéttarinnar að gerast einvaldur 1661, og með því minnkuðu völd og áhrif aðalsmanna, en tapið í stríðinu var talið þeirra sök.
Skánn hafði síðan í mannsaldur stöðu hjálendu í sænska ríkinu og eins og sjá má á neðanskráðum vefsíðum þá eru íbúar þar enn dansksinnaðir margir hverjir enda hefur Eyrarsundsbrúin greitt fyrir því að mikið er um að fólk búi öðrum megin Sundsins en stundi sína atvinnu hinum megin. Slóðirnar benda og á að íbúum Suður-Svíþjóðar finnist meira til um Kaupmannahöfn en Stokkhólm. Ef landsleikir á milli þjóðanna fara fram á Skáni hefur farið svo að áhorfendur séu fremur á bandi Dana en Svía.

Vefurdenstoredanske.lex.dk (opnast í nýjum flipa)

Vefurdenstoredanske.lex.dk (opnast í nýjum flipa)

Vefurdenstoredanske.lex.dk (opnast í nýjum flipa)

Vefurdenstoredanske.lex.dk (opnast í nýjum flipa)

Myndir