Ætterni sín mikils mátti
Ætterni sín mikils máttimeir en prófið háttbiskupa nýta í ættum áttiannað Gísla um fátt.
Eða:
Ætterni sín mikils máttimeir en prófið háttbiskup að föður og bróður áttiaf brestum hans segir fátt.
Heimildir og samhengi
Gísli Þorláksson (1631-1684). Hólabiskup 1657 til 1684 var sonur Þorláks Hólabiskups Skúlasonar og k.h. Kristínar Gísladóttur lm. í Bræðratungu Hákonarsonar, sjá m.a. 1628 og 1715, en móðurafi Þorláks, þ.e. langafi Gísla, var Guðbrandur Þorláksson Hólabiskup.
Íslenskar æviskrár nefna ekki skólagöngu Gísla fyrr en hann er skráður í stúdentatölu í háskólanum ytra - væntanlegta í Kaupmannahöfn - 3. des. 1649 og hafi komið aftur til landsins 1652, þ.e., próflaus eftir tæp þrjú ár ytra. Varð eftir það rektor á Hólum 1654 og kosinn biskup 1656, vígður 1657. Páll Vídalín lét lítið af latínuþekkingu hans og að þýdd Húspostilla, við hann kennd, hafi verið úr uppköstum föður hans segja Ísl. æviskrár.
Og enn fremur: ,,Gísli biskup var ... friðsamur maður, lítillátur og ljúfur, vel látinn, góðgerðasamur og örlátur".
Fleira segir af bróður Gísla, Þórði Skálholtsbiskupi, sem átti og lék á regal fyrstur Íslendinga og lét fyrst prenta Íslendingasögur, sjá 1658, 1688 og 1697.
Gísli kvæntist þrisvar en varð ekki barna auðið.